fim. 9. maí 2024 14:10
Fon­seca var stofn­andi lögmannastofunnar Mossack Fon­seca.
Ramon Fonseca látinn

Ramon Fon­seca, sem öđlađist heims­frćgđ í hneyksl­is­mál­inu tengdu Pana­maskjöl­un­um, er látinn 71 árs ađ aldri.

Fon­seca, sem var annar tveggja stofn­enda lögmannastofunnar Mossack Fon­seca, féll frá í nótt á spítala í Panamaborg. Lögmađur hans segir viđ AFP-fréttaveituna ađ hann hafi átt viđ veikindi ađ stríđa um hríđ og hafi ţeirra vegna međal annars ekki mćtt fyrir dóm í apríl.

Gögnunum lekiđ áriđ 2016

Gögnum var lekiđ úr Mossack Fonseca áriđ 2016. Ţannig komst upp um fjöl­marga viđskiptavini Mossack Fon­seca sem nýttu sér af­l­ands­fé­lög til ţess ađ fela fjár­muni sína.

Međal ţeirra sem koma fyr­ir í skjöl­un­um eru Sig­mund­ur Davíđ Gunn­laugs­son, sem ţá var for­sćt­is­ráđherra, Dav­id Ca­meron, sem ţá var for­sćt­is­ráđherra Bret­lands, arg­entínski knattspyrnumađur­inn Li­o­nel Messi og margir ađrir.

Afleiđingar lekans hafa veriđ mismunandi fyrir ţá sem nýttu sér af­l­ands­fé­lögin, en eins og ţekkt er hrökklađist Sigmund­ur úr embćtti for­sćt­is­ráđherra vegna máls­ins og ţá var Messi fund­inn sek­ur um skattsvik á Spáni.

til baka