Stjörnuspá þri. 21. maí. 2024

Stjörnuspá
þri. 21. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.

20. apríl - 20. maí

Þú kannt að njóta lífsins og allir spyrja þig hvert skal fara, með hverjum og í hverju. Og það er um að gera að láta verða af því.

21. maí - 20. júní

Þú ert ekki til stórræðanna fyrri part dags en munt bæta það upp seinnipartinn. Kveddu þér bara til samstarfsmenn og þá gengur allt vel.

21. júní - 22. júlí

Dagurinn í dag gæti orðið sérstaklega skemmtilegur í vinnunni. Láttu allar áhyggjur lönd og leið um stund og lyftu þér upp og njóttu augnabliksins.

23. júlí - 22. ágúst

Sýndu öðrum næga tillitssemi, sérstaklega þar sem um sameiginleg fjárhagsmálefni er að ræða. Viðbrögð þín við áreiti eiga ekki við þann lífsstíl sem þú hefur tamið þér.

23. ágúst - 22. september

Mörg stórmál bíða afgreiðslu þinnar svo þú skalt bretta upp ermarnar og ganga hiklaust til verks. Leggðu áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í kringum þig eru.

Vog
23. september - 22. október

Þér opnast skyndilega nýr heimur og átt fullt í fangi með að átta þig á öllu því sem að honum fylgir. Tilhugsunin um að læra eitthvað nýtt fyllir þig tilhlökkun.

23. október - 21. nóvember

Það þarf stundum lítið út af að bera til þess að afleiðingarnar valdi verulegum vandræðum. Það er margt sem þú getur lært af vinum og kunningjum í dag.

22. nóvember - 21. desember

Þú hefur unnið þér hylli vegna verka þinna og allar líkur eru á því að þér bjóðist gull og grænir skógar. Hafðu þitt á hreinu og talaðu skýrt.

22. desember - 19. janúar

Mikill atburður mun hafa djúp áhrif á þig og gera þér ókleift um skeið að sjá hlutina í réttu ljósi. Reyndu að taka vel í hlutina, þótt erfitt sé og varastu að bera salt í sárin.

20. janúar - 18. febrúar

Nærðu sköpunargáfuna með því að gefa henni rými til að anda. Mundu að virða skoðanir annarra, líka þótt þú sért ekki sammála þeim.

19. febrúar - 20. mars

Gættu þess að sýna rausnarskap og hafðu trú á getu þinni og stöðu. Ef þú sýnir tillitssemi munu aðrir hlusta á þig.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og