Minkar herja á fuglana á Seltjarnarnesi

Þessi minkur spókaði sig áhyggjulaus í húsagarði á Seltjarnarnesi.
Þessi minkur spókaði sig áhyggjulaus í húsagarði á Seltjarnarnesi. Ljósmynd/Sólveig Þórhallsdóttir

„Við höfum orðið vör við þetta og sjáum hann á vorin, við heyrum líka af honum reglulega,“ segir Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi í samtali við Morgunblaðið, en fregnir hafa borist af vaxandi minkaplágu í bænum.

Hafa minkar verið að gera sig heimakomna við íbúðarhús, en einnig herjað á fugla, en mikið fuglalíf er í Gróttu og varptíminn fer nú í hönd.

Þegar vart verður við mink er meindýraeyði sem bærinn er með þjónustusamning við gert viðvart og bregst hann strax við ábendingum, að sögn Þórs.

Hann segir að mun fleiri gildrur séu í bænum en áður.

„Í fyrra sumar veiddust nokkrir minkar í bænum og ég ætla að láta halda utan um veiðitölurnar í sumar og birta þær reglulega svo hægt sé að fylgjast með því hvernig þetta vinnst,“ segir Þór.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert