Allir keppendur íslenska landsliðsins náðu í úrslit eftir forkeppni í fimmgangi sem fór fram í dag á heimsleikum íslenska hestsins í Hollandi.
Sara og Flóki voru fyrst inn á völlinn og settu tóninn með glæsilegri sýningu upp á 7,37 og enduðu í 3. sæti og eru í 2. sæti inn í A-úrslit fullorðinna. Strax á eftir Söru í rásröðinni voru svo þær Glódís og Salka. Þær áttu frábæra sýningu og náðu sínum besta árangri hingað til og leiða keppnina í U21 með 7,4 og eru með aðra hæstu einkunn dagsins af öllum keppendum í fimmgangi.
Þriðja íslenska parið í braut í fimmgangi voru engin önnur en nýkrýndir heimsmeistarar ungmenna í gæðingaskeiði, Benedikt og Leira-Björk. Þau hafa lítið sem ekkert keppt í fimmgangi, en síðasta keppni þeirra saman í þeirri grein var árið 2019 – þá fengu þau 6,33. Árangur dagsins er því sannarlega glæsilegur hjá þessu flotta pari, en í dag fengu þau hvorki meira né minna en 6,5. Þau eru eftir daginn þriðju stigahæst ungmenna.
Fjórðu voru Benjamín Sandur og Júní. Þau áttu gífurlega flotta sýningu. Benjamín og Júní eru glænýtt par, en sýndu heldur betur úr hverju þeir eru gerðir og hlutu 6,97 í einkunn og deila þar með 10. sæti með fimmta og síðasta pari íslenska landsliðsins í braut, þeim Þorgeiri og Goðasteini. Þau slógu botninn í fimmganginn með glæsilegri sýningu líka upp á 6,97. Benjamín og Þorgeir munu því keppa í B-úrslitum.
Hekla Katharína Kristinsdóttir, landsliðsþjálfari U21, var ákaflega ánægð með daginn.
„Glódís átti frábæra sýningu upp á 7,40 sem var hennar besti árangur og Benedikt var að toppa sig í fimmgangi, algjörlega óæft því við höfum bara lagt áherslu á gæðingaskeiðið og hann hefur fengið þau fyrirmæli að æfa þetta bara í reiðtúrum og það hefur greinilega gengið mjög vel. Svo eru kappreiðarnar í kvöld, fyrstu tveir sprettirnir, en það væri gaman að stimpla sig strax inn þar.
Uppleggið var að halda fókus og passa að hestarnir fari ferskir inn á völlinn. Þá verðum við þjálfararnir að vera vel á tánum á upphitunarsvæðinu og passa að knaparnir fari ekki fram úr sér þar því hestarnir þurfa að vera með mestu orkuna inna á vellinum.“
Mótssvæðið var heldur blautt í morgun og upphitunarvöllurinn var raunar eitt svað. Hekla segir það hafa verið vont að sjá, en farið var af stað í að leysa málið.
„Það fannst frábær lausn á því máli. Við sem sagt færðum safnhringinn yfir á æfingavöllinn og það voru allir sáttir við það og það hefur gengið ofboðslega vel flæðið hér inn á völlinn. Þetta var leyst í sameiningu mótshaldara, dómara og var mjög góð lausn.“