Stjörnuspá fös. 17. maí. 2024

Stjörnuspá
fös. 17. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.

20. apríl - 20. maí

Þú ættir að leyfa sköpunargleði þinni að brjótast út. Þú virðist hafa alla þræðina í hendi þér svo þú getur ótrauður haldið ætlunarverkinu áfram.

21. maí - 20. júní

Vinna þín hefur skilað góðum árangri og þú mátt vera stoltur af sjálfum þér. Þegar þú leggur mikið á þig til að standa við tekna ákvörðun, byggir þú upp sjálfstraustið.

21. júní - 22. júlí

Ekki flokka eitthvað flókið í bara svart og hvítt. Kannski að þínir nánustu séu ekki að skilja þig eins og þeir ættu að gera, en það gerir afstöðu þína ekki minna virði.

23. júlí - 22. ágúst

Þú hefur lengi ætlað að koma málum þínum á framfæri en hefur ekki haft tækifæri til þess. Hlustaðu á þinn innri man og hafðu engar áhyggjur.

23. ágúst - 22. september

Varastu að vera stöðugt kvartandi út af öllum sköpuðum hlutum. Einhver hefur hugmyndir um stórvægilegar breytingar í vinnunni.

Vog
23. september - 22. október

Hæfileiki þinn til að höfða til annarra er mikill í dag. Það vantar ekki innblásturinn í kringum þig, þótt þú vitir ekki hvað þú eigir að gera til að byrja á verkinu.

23. október - 21. nóvember

Það er í lagi að treysta sínum nánustu fyrir sínum framtíðardraumum. Láttu öfund annarra ekki draga þig niður heldur láttu sem ekkert sé.

22. nóvember - 21. desember

Hlutirnir kunna oft að virðast flóknari en þeir eru. Vertu hvergi smeykur; hleyptu heimdraganum og skoðaðu þig um í veröldinni.

22. desember - 19. janúar

Þú þarft á öllum þínum góðu hæfileikum að halda til þess að leiða viðkvæmt fjölskyldumál til lykta. Þú ættir að láta það eftir þér að kaupa þér eitthvað fallegt í dag.

20. janúar - 18. febrúar

Styrkur þinn og hæfileikar hafa aflað þér aukinnar virðingar að undanförnu. Ekki velta fyrir þér hversu skapandi þú sért, ánægjan er falin í því að gera.

19. febrúar - 20. mars

Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir sem þig dreymir um. Atvinnutækifæri, frami og tillögur frá fyrirmönnum eru allt möguleg uppspretta aðstoðar.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og