Vara við nýrri tegund netsvika

Neytendasamtökin vara við nýrri tegund netsvika.
Neytendasamtökin vara við nýrri tegund netsvika. Ljósmynd/Unsplash

Neytendasamtökin vara við nýrri tegund netsvika þar sem rafrænum skilríkjum er stolið. Í tilkynningu á vef samtakanna segir að samtökin hafi ekki séð þessa tegund netsvika áður. 

Erindin bárust frá tveimur félagsmönnum sem höfðu fengið beiðni senda um rafræna auðkenningu í símtæki sitt. 

Auðkenningarbeiðnir voru ekki staðfestar og féllu þar með á tíma. Í kjölfarið fengu einstaklingarnir smáskilaboð með yfirheitinu „Endurheimt, upplýsingar-is.“ Í skilaboðunum mátti finna hlekk sem unnt var að smella á til að fá nánari upplýsingar um þessar beiðnir að því er fram kemur í tilkynningunni. 

„Þegar smellt var á hlekkinn í smáskilaboðunum voru félagsmennirnir báðir beðnir að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að nálgast nánari upplýsingarnar. Þar með gátu svikahrapparnir opnað heimabanka í nafni félagsmanna og fengið yfirdráttarheimild sem síðan var stungið undan. Um töluverðar upphæðir var að ræða í báðum tilvikum,“ segir í tilkynningunni. 

Öðrum gert að greiða „skuldina“ – hinum ekki

Svikin voru gerð í sitt hvorum bankanum og taldi annar þeirra þrotaþola ábyrgan og gerði honum að greiða „skuldina“ við bankann. Hinn bankinn taldi ljóst að um svik væri að ræða og felldi svikaskuldina niður.

Stuldur á rafrænum skilríkjum er ekki nýr af nálinni en þá hafa svikurum tekist að komast yfir bæði símtæki fórnarlamba og PIN-númer. Þessi svik ganga hins vegar út á að fá fólk til að samþykkja auðkenningu í ógáti. 

Fjallað er um netsvik í Morgunblaðinu í dag og þar rætt við Guðmund Arnar Sigmundsson, forstöðumann netöryggissveitarinnar CERT-IS. Netöryggissveitin gaf nýverið út ársskýrslu þar sem fram kemur að netsvikum hafi fjölgað stórlega á síðasta ári. Þá hafa upphæðirnar sem fólk tapar í slíkum svikum hækkað ört á milli ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert