„Sancho var betri en Mbappe“

Jadon Sancho leikur listir sínar í leik kvöldins.
Jadon Sancho leikur listir sínar í leik kvöldins. AFP/ FRANCK FIFE

Owen Hargreaves, fyrrverandi leikmaður Bayern München og enska landsliðsins, segir Jadon Sancho hafa spilað betur en sjálfur Kylian Mbappe í leik Dortmund og PSG í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Dortmund vann fyrri leik liðanna á Signal Iduna Park í Dortmund í kvöld með marki Niclas Füllkrug en Sancho var að mati Hargreaves besti maður vallarins.

„Ég sá það fljótlega að hann var fullur sjálfstrausts. Hann sýndi smá hroka sem gerir skapandi leikmönnum gott. Við sáum ekki jafn mikið af honum reyna að taka menn á hjá Manchester United, hvort sem það var spurning um sjálfstraust eða líkamlegt form, en Sancho svaraði mörgum spurningum með frammistöðu sinni í kvöld“.

Hargreaves hélt áfram og var yfir sig hrifinn af Englendingnum sem hrökklaðist frá Manchester United í janúar eftir slakar frammistöður og ósætti við Erik ten Hag.

„Í undanúrslitum Meistaradeildarinnar er gríðarleg pressa á þér, sama fyrir hvaða lið þú spilar. Hann spilaði betur en besti leikmaður heims í dag, Kylian Mbappe. Hann á mikið hrós skilið“.

Franska stórstjarnan Kylian Mbappe þakkar stuðningsmönnum eftir tapið gegn Dortmund.
Franska stórstjarnan Kylian Mbappe þakkar stuðningsmönnum eftir tapið gegn Dortmund. AFP/FRANCK FIFE
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert