Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna halda áfram að skemmta landsmönnum með tónleikum í stofunni í kvöld. Efnt er til kvöldvöku á heimilum landsmanna í samstarfi Sjónvarps Símans, mbl.is og K100.
Helgi mun sem fyrr syngja mörg af sínum þekktustu lögum í bland við perlur úr dægurlagasögunni okkar og að sjálfsögðu mun hann njóta aðstoðar góðra gesta.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og hægt verður að fylgjast með þeim hér að neðan og í Sjónvarpi Símans.