Stjörnuspá þri. 16. apr. 2024

Stjörnuspá
þri. 16. apr. 2024

21. mars - 19. apríl

Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.

20. apríl - 20. maí

Þú treystir innsæinu og sjötta skilningarvitinu í dag. Hvaðan færð þú hugmyndir? Þú virðist alltaf vita hvernig best er að hafa hlutina.

21. maí - 20. júní

Þú finnur þig knúinn til þess að losa þig undan hversdagslegri rútínu í dag. Dagurinn er kjörinn til þess að hitta vinina og finna út úr því hvernig hægt er að bæta veröldina.

21. júní - 22. júlí

Eitt og annað virkar freistandi en það er svo margt í lífinu sem maður verður að neita sér um ef vel á að fara. Gefðu þeim tækifæri sem hafa gert á þinn hlut að þínu mati.

23. júlí - 22. ágúst

Atburðarásin mun taka öll völd úr höndum þér ef þú ekki stingur við fótum og nærð stjórn á hlutunum. Fólk er jákvætt gagnvart þér og þú sýnir því vináttu á móti.

23. ágúst - 22. september

Það er ekki opinbert, en ef atkvæðagreiðsla færi fram, kæmistu að því að allir halda með þér. Gerðu það sem er erfitt strax.

Vog
23. september - 22. október

Rangar spurningar leiða til enn meira öngþveitis. Ekki láta það draga þig niður. Þú bætir sífellt við verkefnum, væri ekki ráð að hægja aðeins á?

23. október - 21. nóvember

Það er engin ástæða að draga sig í hlé þótt hugmyndir þínar slái ekki í gegn. Þú hefur ekki sinnt áhugamálunum lengi, hvernig væri að rifja þau upp?

22. nóvember - 21. desember

Snúðu ekki baki við gömlum vini, sem leitar til þín og þarfnast hjálpar þinnar. Orðspor þitt mun berast víða næstu misseri.

22. desember - 19. janúar

Það er engin ástæða fyrir þig að bæta á þig annarra áhyggjum. Þú slærð í gegn í næstu veislu og ættir að huga að því að taka að þér veislustjórn í meira mæli.

20. janúar - 18. febrúar

Nýtt ástarævintýri er að hefjast. Njóttu ferðalagsins og ekki hafa of miklar áhyggjur af framtíðinni. Hún mun sjá um sig sjálf.

19. febrúar - 20. mars

Ekki gera lítið úr því sem sækir á huga þinn. Veldu það sem þér finnst rétt, ekki það sem þú heldur að sé rétt að gera.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og