Alls létust 185 af völdum kórónuveirunnar í Rússlandi síðasta sólarhringinn og 15.099 tilfelli voru staðfest þar í landi. Þrátt fyrir aukinn fjölda tilfella síðustu daga í höfuðborginni Moskvu hafa aðgerðir ekki verið hertar þar.
Fram kemur í frétt AP að troðið hafi verið á vinsælum börum og veitingastöðum í Moskvu á föstudagskvöldið.
Rætt er við almenna borgara og telja þeir að flestir muni smitast á endanum af veirunni.
Þrátt fyrir að daglegur fjöldi tilfella sé meiri nú en í vor eru rússnesk yfirvöld treg til að herða takmarkanir vegna ótta um áhrifin sem það hafi á fyrirtæki.