52 smit innanlands og 79% í sóttkví

Ljósmynd/Landspítalinn

Alls greind­ust 52 kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær en þetta kem­ur fram á covid.is. Af þeim var 41 (79%) í sótt­kví þegar hann greindist en 11 utan.

Nú eru 1.240 í ein­angr­un á land­inu öllu og fækkar um tvo frá því í gær. Í sótt­kví eru 2.780 og 1.486 eru í skimun­ar­sótt­kví.

Fimm bíða niður­stöðu mót­efna­mæl­ing­ar eft­ir sýna­töku við landa­mæra­skimun.

26 eru á sjúkra­húsi og af þeim eru fjór­ir á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans.

Af þeim sem greind­ust inn­an­lands höfðu 32 farið í ein­kenna­sýna­töku hjá Land­spít­al­an­um og Íslenskri erfðagrein­ingu en 685 slík sýni voru tek­in í gær.

485 fóru í sýna­töku vegna þess að viðkom­andi var í sótt­kví og reynd­ust 20 þeirra vera með Covid-19. 571 fór í landa­mæra­skimun í gær.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert