Græjan sem flestir gleyma að þrífa

mbl.is/actioncleaningservices.net

Ef það er einhver græja sem gleymist inni í skáp og fær mjög litla athygli nema þegar þess er þörf, þá er það straujárnið. Það er ekki fyrr en við þurfum að nota það sem við áttum okkur á því að það er þörf á að þrífa það líka. Þú finnur það best þegar járnið er hætt að fljóta mjúklega yfir flíkina þína þegar þú rennir henni yfir.

Svona þrífur þú straujárnið með eldhúsrúllu

  • Þegar eitthvað situr fast eða klístrað á járninu og þú tímir ekki að nota tuskuna kemur eldhúsrúllan að góðum notum
  • Stilltu járnið á mesta hita
  • Slökktu á gufustillingunni
  • Renndu járninu yfir gott lag af eldhúspappir þar til járnplatan er hætt að klístra

Svona þrífur þú straujárnið með tannkremi

  • Notið hvítt tannkrem í þessu tilviki en ekki gel
  • Hafið slökkt á járninu og sjáið til þess að það sé alveg kalt
  • Nuddið hvítu tannkremi á plötuna
  • Þurrkið af með rökum klút
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert