Götumarkaðurinn opnar við Klapparstíg 28-30

Götumarkaðurinn – Klapparstíg 28-30 er nýr „pop up“ veitingastaður þar sem áhersla er lögð á nýja spennandi söluaðila til að prófa sig áfram með ný skemmtileg konsept. 

Götumarkaðurinn var með mjúk opnun þar síðustu helgi við frábærar undirtektir og var fyrirhugað að opna fyrir gesti strax helgina eftir. 

Hinsvegar í ljósi aðstæðna þá var það sett á ís, en nú í vikunni þá ætlum við að framlengja okkar mjúk opnun og verður því opið í „take away“ hjá Just Wingin It – Vængjavagninum og hægt verður að panta fyrirfam í gegnum netið.

Þess má geta að Just Wingin It sigurðu í keppninni um besta Götubitan 2020 í flokknum "Besti smábitinn 2020" og var dómnefnd sammála um að þetta væru bestu kjúklingavængir á landinu.

Þegar samkomutakmörkunum léttir þá verða fjórir aðilar starfræktir á Götumarkaðinum.  Þeir aðilar sem verða fyrst um sinn eru Just Wingin It – Vængjavagninn, Rvk Raclette, Mónópól bar og svo munum við vera með sí breytilega aðila í kjallara húsnæðisins, og verður sú dagskrá auglýst nánar síðar en það eru gríðarlega spennandi ný konsept eins og, Borðhaldið, Sono matseljur sem einblína á grænkerafæði.

Silli Kokkur mun svo vera með nokkurskonar yfirtöku á öllum staðnum með villibráða veislu í Nóvember.  Einnig erum við að skoða aðrar spennandi útfærslur eins og að breyta húsnæðinu í takmarkaðan tíma í lítið „China Town“ eins og við þekkjum erlendis frá og þá verða fjórir mismunandi asískir veitingastaðir sem verða með yfirtöku á húsnæðinu.

Nánari upplýsingar er að finna inn á Facebook síðu markaðarins – @gotumarkadurinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert