Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra segist ekki vita hvar eða hvenær fundur hennar með deiluaðilum í sjómannadeilunni verður haldinn í kvöld. Samninganefndir sjómanna og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hafa fundað hjá ríkissáttasemjara í dag.
„Ég hef sagt allan tímann að það er sjálfsagt mál að ræða og hlusta á hvað menn hafa fram að færa,“ segir Þorgerður Katrín í samtali við mbl.is.
„Þetta er deila á milli sjómanna og útgerðarmanna, ekki deila ríkisins við þá og það er ekki hægt að koma með einhverjar kröfur sem stilla ríkinu upp við vegg,“ bætir Þorgerður við en hún segir engar sérstækar aðgerðir í kortunum, eitt skuli yfir alla ganga.
Aðspurð segir Þorgerður að fyrirhugaður fundur í kvöld sé að frumkvæði deiluaðila. „Þetta er að þeirra frumkvæði sem er ákveðin vísbending um að þeir eru komnir eitthvað áleiðis í samningaviðræðunum.“
Þorgerður ákvað í gær á grundvelli tillagna Hafrannsóknastofnunar að auka heildarafla íslenskra skipa á loðnu í alls 196.075 tonn á þessari vertíð. Áætlað heildarverðmæti loðnuaflans er um 17 milljarðar króna. Fyrr í vetur hafði íslenskum skipum verið úthlutað rúmum 12 þúsund tonnum þannig að aukningin er rúmlega sextánföld.
„Ég held að menn átti sig á ábyrgðinni þegar svona mikil verðmæti eru í hafinu. Menn hafa ekkert mjög langan tíma til að ná í loðnuna, í mesta lagi þrjár, fjórar vikur þannig að það hefur örugglega sett ákveðna pressu á þá. Þetta eru tæpir 17 milljarðar fyrir þjóðarbúið og það er alvarlegt ef menn ná ekki að klára það til að ná í loðnuna,“ segir Þorgerður þegar hún er spurð hvort sú ákvörðun hafi sett aukna pressu á samninganefndirnar.