Atkvæðagreiðslu sjómanna að ljúka

Margrét EA-710 gerð klár til veiða á Akureyri í dag.
Margrét EA-710 gerð klár til veiða á Akureyri í dag. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Atkvæðagreiðslu sjómanna um kjarasamning, sem samninganefndir þeirra og SFS náðu saman um aðfaranótt laugardags, lýkur víða nú síðdegis.

Sem dæmi um þetta gátu sjómenn innan stéttarfélagsins Framsýnar kosið til klukkan 15 í dag en eftir það geta þeir, sem komu því ekki við að kjósa á auglýstum tíma, haft samband við formann félagsins. Sá möguleiki býðst þeim til klukkan 17.

Félagið Báran á Selfossi efndi til kynningarfundar klukkan 14 í dag og verður atkvæðagreiðsla um samninginn í lok fundar.

Enn hægt að kjósa í Reykjavík

Sums staðar er kosningu þó lokið, til dæmis hjá VerkVest á Vestfjörðum, þar sem kjörfundur stóð yfir frá klukkan 10 til 12 í morgun.

Enn er hægt að kjósa í Reykjavík frá klukkan 13 til 18, hjá Sjómannafélagi Íslands í Skipholti 50d, og hjá Eflingu í Guðrúnartúni 1 frá klukkan 14 til 17.

Hjá Verkalýðsfélagi Akraness var kosið um samninginn á sérstökum kynningarfundi sem haldinn var klukkan 17 í gær og sömu sögu má segja um Sjómannafélag Eyjafjarðar.

Kjörfundi er lokið hjá Samstöðu á Blönduósi, en honum lauk klukkan 14 í dag.

Flogið með atkvæðin eða talið hjá sýslumönnum

Flogið verður með atkvæði sjómanna frá sumum stöðum á landsbyggðinni til Reykjavíkur, en annars staðar verða sýslumenn eða lögreglan fengin til að telja.

Ljóst er að útgerðarfélög eru vongóð um að sjómenn samþykki samninginn, en skipum hefur til dæmis verið siglt austur á firði og áhafnir þeirra verða sendar þangað með flugi fari svo að samningarnir verði samþykktir, samkvæmt heimildum mbl.is.

Þá náðist myndin hér að ofan á Akureyri í morgun, þegar verið var að gera Margréti EA-710 klára til veiða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa
Karfi 91.675 kg
Ufsi 10.767 kg
Þorskur 692 kg
Langa 300 kg
Samtals 103.434 kg
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 10.108 kg
Þorskur 718 kg
Ýsa 71 kg
Samtals 10.897 kg
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.233 kg
Þorskur 118 kg
Skarkoli 6 kg
Rauðmagi 4 kg
Þykkvalúra 3 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 1.366 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa
Karfi 91.675 kg
Ufsi 10.767 kg
Þorskur 692 kg
Langa 300 kg
Samtals 103.434 kg
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 10.108 kg
Þorskur 718 kg
Ýsa 71 kg
Samtals 10.897 kg
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.233 kg
Þorskur 118 kg
Skarkoli 6 kg
Rauðmagi 4 kg
Þykkvalúra 3 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 1.366 kg

Skoða allar landanir »