„Gríðarlegt högg“ fyrir Akranes

„Þetta er gríðarlegt högg fyrir bæinn. Ég myndi áætla að þarna væru undir 150 störf ef tekin eru með afleiddu störfin.“ Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í samtali við mbl.is, í kjölfar ákvörðunar HB Granda um að segja upp 86 starfsmönnum þar í bæ.

„Þeir eru að hætta botnfiskvinnslu á Akranesi eftir að hún hefur verið í bænum í rúmlega hundrað ár. Það getur ekki verið nema á einn veg, það er virkilega sorglegt.“

Vilhjálmur segir það augljóst að viðræður HB Granda við Akranesbæ um að bæta hafnarsvæðið hafi ekki haft áhrif.

„Þeir segjast vonast til að geta fundið öllum starfsmönnum störf og þau eru að stórum hluta í Reykjavík. Það er einfaldlega þannig að þetta eru að langmestu leyti konur í fiskvinnslunni sem eiga börn í leikskóla og skóla, þannig það verður erfitt fyrir þær að taka slíku boði, miðað við það sem ég heyrði frá starfsmönnum í dag,“ segir Vilhjálmur. 

„Þarna bætast við tveir klukkutímar á vinnudaginn, ef starfsmenn eiga að sækja vinnu til Reykjavíkur. Ég verð að segja alveg eins og er, að þegar fiskvinnslukona er búin að standa við færibandið í átta klukkutíma, þá er dálítið mikið að bæta tveimur tímum til viðbótar í ferðir fram og til baka. Þetta sögðu þær mér í dag.“

„En þetta er niðurstaðan og veruleikinn sem blasir við, það er ekkert öðruvísi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »