Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra, sem í maímánuði skipaði þverpólitíska nefnd sem á að leita sátta um hvernig framtíðargjaldtöku í sjávarútvegi verður háttað í framtíðinni, kveðst ekki telja að starf nefndarinnar sé í uppnámi, þótt þrír fulltrúar minnihlutans hafi bókað harðorða gagnrýni á formann nefndarinnar, Þorstein Pálsson, á síðasta fundi nefndarinnar, líkt og greint var frá á laugardag.
Gagnrýni fulltrúa VG, Framsóknarflokks og Samfylkingar í nefndinni var til komin vegna skrifa Þorsteins Pálssonar á vefritinu Kjarnanum, sem fulltrúunum fannst ekki lýsa miklum sáttavilja.
„Það er engin ástæða fyrir mig að ætla annað en að starf nefndarinnar haldi áfram. Ég hef ekki haft afskipti af störfum nefndarinnar. Við erum að fara tiltölulega nýja leið og kalla alla stjórnmálaflokka að borðinu. Þeirra er ábyrgðin og þeir verða bara að rísa undir henni. Ég hef enga ástæðu til annars en að halda að hinum mikilvægu störfum nefndarinnar verði haldið áfram,“ sagði sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær.
Þorgerður Katrín bendir á að það hafi nú gerst í fyrsta sinn að sjávarútvegsráðherra væri með samráð, ekki bara við hagsmunaaðila, heldur líka við stjórnarandstöðuna og Pál Magnússon, formann atvinnuveganefndar Alþingis, áður en hún tók ákvörðun um það hvert aflamarkið yrði fyrir næsta fiskveiðiár.
„Við það samráð bar þetta ágreiningsmál frá hendi fulltrúa hluta stjórnarandstöðunnar á góma, vegna skrifa formannsins,“ sagði Þorgerður Katrín, „og ég heyrði ekki annað frá neinum þeirra sem við var rætt, en að menn ætluðu að halda starfinu í þverpólitísku nefndinni áfram af fullum krafti. Vissulega voru skiptar skoðanir um það hjá ólíkum nefndarmönnum, hvort það hafi verið rétt hjá formanninum að láta birta greinina á Kjarnanum.
Eftir stendur að ég mun engin afskipti hafa af þessu og geri bara ráð fyrir því að menn axli ábyrgð og starfi af heilindum í nefndinni.“