Hækkun veiðigjalda mönnum löngu ljós

Þorsteinn Pálsson er formaður sáttanefndar um sjávarútveg.
Þorsteinn Pálsson er formaður sáttanefndar um sjávarútveg. mbl.is/Rax

„Þetta er búið að vera ljóst lengi. Þetta er engin staða sem er að koma upp núna,“ segir Þorsteinn Pálsson, formaður sáttanefndar um sjávarútveg, en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra skipaði nefndina í vor.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi áætla að veiðigjöld verði 10,5 til 11 milljarðar á næsta ári, sem er ríflega tvöföldun frá yfirstandandi veiðiári. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa gagnrýnt þessa miklu hækkun veiðigjalda, en við útreikninga gjaldanna er tekið mið af árinu 2015 þegar afkoma í sjávarútvegi var betri en nú er.

Meginhlutverk sáttanefndarinnar er að taka gjaldheimtu í sjávarútvegi til endurskoðunar og hefur nefndin tíma til 1. desember á þessu ári til að skila af sér tillögum. 

„Það er hlutverk nefndarinnar að kanna hvort hægt sé að ná breiðari sátt um annars konar innheimtu á gjöldunum og hversu mikil hún á að vera,“ segir Þorsteinn. „En nefndin er að störfum og því ekkert hægt að segja á þessu stigi hver niðurstaðan verður.“

Ekkert starf er hjá nefndinni í júlí vegna sumarleyfa, en nefndin kemur aftur saman í ágúst að sögn Þorsteins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 477,85 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 324,35 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 217,36 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,22 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg
17.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 4.588 kg
Ýsa 1.782 kg
Karfi 164 kg
Steinbítur 129 kg
Ufsi 27 kg
Langa 11 kg
Keila 11 kg
Samtals 6.712 kg

Skoða allar landanir »