Beitir með 440 tonn af síld

Beitir NK 123 að veiðum skammt frá Grindavík. Mynd úr …
Beitir NK 123 að veiðum skammt frá Grindavík. Mynd úr safni. mbl.is/Haraldur Hjálmarsson

Fyrir og um helgina var bræla fyrir austan og þegar hún gekk niður reyndist erfitt fyrir veiðiskipin að finna makrílinn á miðunum þar. Þá sneri Beitir NK sér að því að veiða síld og kom í nótt til Neskaupstaðar með 440 tonn. Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, segir að um sé að ræða stóra og fallega norsk-íslenska síld.

„Við fengum síldina innarlega í Norðfjarðardýpinu og á landleiðinni sáum við nokkrar afar fallegar síldartorfur nær landi. Það virðist vera töluvert af síld á þessum slóðum,“ segir Tómas.
 
Hann segir að eftir brælur hverfi makríllinn stundum og hafi það líka gerst á síðustu vertíð. Síðan jafni þetta sig og ágæt makrílveiði hafi til dæmis verið um 60 mílur út af Norðfjarðarhorni í gærkvöldi.
 
Vegna þess hve erfiðlega gekk að finna makrílinn eystra hélt Bjarni Ólafsson AK til veiða vestur fyrir land. Hann er nú á leið til Neskaupstaðar með rúmlega 400 tonn af makríl sem fékkst í tveimur holum á Jökulbanka í Faxaflóanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »