Síðasti dagur til að sækja um veiðiheimildir í makríl sem verður úthlutað í næstu viku er í dag. Gjaldið á hvert kíló er 2,78 krónur og er hámarksúthlutun 35 tonn. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.
Makrílveiðar smábáta hófust um mánaðamótin og segir í frétt á vef Landssambands smábátaeigenda frá því á miðvikudag að rúmlega tugur báta hafi þá verið að veiðum og „bekkurinn þétt setinn“ útaf Keflavíkurhöfn. Makríllinn sem veiðist er með besta móti, stór og pattaralegur, og mikið af honum yfir 600 grömmum.
Heimilt er að úthluta allt að 35 lestum í senn á hvern bát við viðbótarúthlutun og verður úthlutað vikulega á meðan viðbótaraflaheimildum er óráðstafað. Viðbótaraflaheimildir eru óframseljanlegar.
Á vef Fiskistofu kemur fram að bátar verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að teljast gjaldgengir til viðbótarúthlutunar:
- Línu- og handfærabátur styttri en 15 metrar og minni en 30 brúttótonn
- Báturinn hafi veitt 80% af úthlutuðum aflaheimildum sínum eða hafi fengið úthlutun undir 27 lestum eða hafi ekki fengið úthlutun.
- Báturinn hafi veitt 80% af úthlutuðum viðbótaraflaheimildum skv. reglugerð 696/2017 um ráðstöfun 2.000 tonna viðbótaraflaheimilda í makríl á árinu 2017.
- Báturinn hafi veiðileyfi með aflamarki eða krókaaflamarki.
- Makrílveiðileyfi þarf til að stunda makrílveiðar og kostar slíkt leyfi 22 þúsund kr. Aðeins bátar sem ekki hafa gilt veiðileyfi þurfa að sækja um.