200 mílur efna til keppni í samstarfi við Morgunblaðið um bestu ljósmyndina, þar sem myndefnið tengist sjávarútvegi eða sjávarsíðunni. Í verðlaun er vegleg gjafakarfa auk þess sem bestu myndirnar munu birtast í næstu útgáfu sérblaðs 200 mílna og Morgunblaðsins, sem kemur út fimmtudaginn 31. ágúst.
Síðast efndu 200 mílur til keppni í apríl síðastliðnum og voru viðtökurnar þá framar vonum, en fjöldi mynda barst í keppnina. Gátu lesendur þá kosið um hvaða mynd þeim þótti best á Facebook-vef 200 mílna og vottuðu hátt í 800 manns sigurmyndinni „like“ sitt, ef svo má að orði komast.
Ólíkt því fyrirkomulagi verður nú skipuð sérstök dómnefnd sem skera mun úr um sigurvegara keppninnar.
Líkt og áður eru áhugasamir hvattir til að virkja sköpunarkraftinn og láta hugann fara á flug við myndasmíðina, enda myndefni og sjónarhorn svo gott sem óteljandi þegar sjórinn, sjósókn og sjávarsíðan öll er annars vegar.
Vert er að benda á það, að hver keppandi getur aðeins sent eina mynd í keppnina. Hafa ber þá í huga að myndina má taka jafnt á sjó sem og landi.
Myndir til þátttöku sendist á netfangið 200milur@mbl.is. Skilafrestur innsendinga er til miðnættis fimmtudagsins 24. ágúst, aðfaranótt 25. ágúst. Vænlegast til árangurs er að senda myndirnar í hæstu mögulegu upplausn, svo þær geti prentast með góðu móti á síðum blaðsins.
Fullt nafn rétthafa myndarinnar skal fylgja innsendingunni og sömuleiðis má endilega fylgja lýsing á myndefninu, hvar myndin er tekin og hvaðeina annað sem frætt getur lesendur um það sem fyrir augu ber.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 91.675 kg |
Ufsi | 10.767 kg |
Þorskur | 692 kg |
Langa | 300 kg |
Samtals | 103.434 kg |
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 708 kg |
Samtals | 708 kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 91.675 kg |
Ufsi | 10.767 kg |
Þorskur | 692 kg |
Langa | 300 kg |
Samtals | 103.434 kg |
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 708 kg |
Samtals | 708 kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |