Baldvin afhentur nýjum eigendum

Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA kom til landsins sem fyrsta nýsmíði …
Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA kom til landsins sem fyrsta nýsmíði Samherja fyrir 25 árum.

Þau tímamót eiga sér stað í þessari viku að skipið Baldvin NC, sem áður hét Baldvin Þorsteinsson EA, verður afhentur nýjum eigendum. Þar með lýkur 25 ára farsælli sögu skipsins með Baldvinsnafninu.

Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA kom til landsins sem fyrsta nýsmíði Samherja fyrir 25 árum, hinn 20. nóvember 1992. Skipið var smíðað í Flekkefjord í Noregi, 66 metra langt og 1.500 tonn að stærð. Fyrsti skipstjóri þess var Þorsteinn Vilhelmsson en aðrir skipstjórar í þau 10 ár sem skipið var í eigu Samherja voru Arngrímur Brynjólfsson, Guðmundur Jónsson og Hákon Þröstur Guðmundsson.

Baldvin Þorsteinsson EA var afar farsælt fiskiskip og áhöfn þess sló ýmis aflamet. Árið 1999 var Baldvin EA t.d. fyrst íslenskra fiskiskipa til að ná aflaverðmæti upp á einn milljarð íslenskra króna.

Árið 2001 var skipið selt til Deutsche Fischfang Union (DFFU), dótturfélags Samherja í Þýskalandi, og var afhent í maí 2002. Skipið var nefnt Baldvin NC og hefur verið í rekstri hjá DFFU í rúm 15 ár. Skipstjórar Baldvins NC undanfarin ár voru þeir nafnar Sigurður Kristjánsson og Sigurður Hörður Kristjánsson.

Baldvin NC landaði afla öðru hverju hér á landi. Síðustu verkefni skipsins fyrir DFFU voru tveir góðir túrar á grálúðuveiðar við Austur-Grænland. Skipið hefur verið selt til Póllands og fær nafnið Polonus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 423,65 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 526,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 423,65 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 526,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »