LS og SFÚ vilja sameina krafta sína

Frá fundinum. Kristján Berg, stjórnarmaður SFÚ, Axel Helgason, formaður LS, …
Frá fundinum. Kristján Berg, stjórnarmaður SFÚ, Axel Helgason, formaður LS, Aðalsteinn Finsen, stjórnarmaður SFÚ, Arnar Atlason, formaður SFÚ, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS. Ljósmynd/LS

Landssamband smábátaeigenda og Samtök fiskframleiðenda og -útflytjenda hafa átt í óformlegum viðræðum um að sameina krafta sína í málefnum þar sem hagsmunir félaganna fara saman.

Þetta kemur fram á vef LS, þar sem segir að félögin hafi átt með sér formlegan fund á Alþjóðadegi fiskveiða 21. nóvember.

Á fundinum hafi verið farið yfir fjölda þátta sem snerta sjávarútveg, samskipti við stjórnvöld og önnur hagsmunasamtök. Mest hafi verið rætt um strandveiðar, veiðigjald, fiskmarkaði, tvöfalt verð sjávarafla, markaðsmál og loks umhverfisvænar veiðar.

„Fram kom hjá SFÚ að strandveiðar smábáta hefðu reynst fyrirtækjum innan samtakanna afar vel. Með þessum veiðum hefði þeim tekist að uppfylla kröfur markaðarins, hér á landi og erlendis, um samfellt framboð á ferskum fiski allt árið.  

SFÚ taldi þann árangur sem LS hefði náð varðandi eflingu strandveiða vera undraverðan og fagnaði ákvörðun ráðherra um aukningu heimilda um 1.200 tonn miðað við reglugerð um veiðar í atvinnuskyni 2016/2017,“ segir á vef LS.

„SFÚ sagði félagsmenn sína hafa áhyggjur af hækkun veiðigjalda á tegundum sem heyra til botnfisks. Fiskverð skilaði útgerðum smábáta ekki þeirri afkomu sem dygði til að greiða óbreytt veiðigjald. Nauðsynlegt væri að stjórnvöld kæmu til móts við kröfu LS um lækkun gjaldsins. Auk hugmynda um þrepaskiptingu veiðigjalds voru aðilar sammála um að það ætti að taka mið af því hversu miklum virðisauka afli seldur á fiskmarkaði skilaði þjóðinni.  

Nauðsynlegt væri að efla frjálsa verðmyndun við sölu afla. Ein leið til þess væri að auka framboð á afla á uppboðsmarkaði. Þannig gætu vinnslur sem ekki hefðu kvóta keppt á jafnréttisgrundvelli. Veiðigjald gæti leikið stórt hlutverk í ferlinu með því að undanskilja afla sem boðinn væri upp á fiskmörkuðum.  

Aukið framboð mundi efla fiskvinnslur sem alfarið væru háðar mörkuðum, þær gætu bætt við sig sem myndi viðhalda öflugri samkeppni. Hærra fiskverð þýddi hækkun útflutningsverðmæta, tekjuaukningu fyrir hafnir og til hinna dreifðu byggða og síðast en ekki síst hærri laun fyrir sjómenn.“

Félögin hafi þá verið sammála um að halda viðræðum áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 251,15 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.4.24 Heimaey VE 1 Flotvarpa
Kolmunni 1.922.770 kg
Samtals 1.922.770 kg
15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 2.013 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg
15.4.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Steinbítur 2.130 kg
Þorskur 327 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 2.490 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 251,15 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.4.24 Heimaey VE 1 Flotvarpa
Kolmunni 1.922.770 kg
Samtals 1.922.770 kg
15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 2.013 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg
15.4.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Steinbítur 2.130 kg
Þorskur 327 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 2.490 kg

Skoða allar landanir »