Endurreisn þorsksins heppnast vel

Ábyrg, sjálfbær og hagkvæm nýting fiskistofna er sögð nauðsynleg undirstaða …
Ábyrg, sjálfbær og hagkvæm nýting fiskistofna er sögð nauðsynleg undirstaða öflugs sjávarútvegs. mbl.is/RAX

Með hóflegu veiðiálagi undanfarin ár hafa þorskárgangar hver af öðrum lifað lengur og tekið út meiri vöxt og þannig gefið meiri afla og lagt meira til hrygningarstofnsins en ella. Úr því takmarkaða efni sem felst í tiltölulega litlum árgöngum hefur hrygningarstofninn, sem eðli málsins samkvæmt er samsettur af eldri fiski, tvöfaldast að stærð á undanförnum áratug.

Þetta kemur fram í grein dr. Kristjáns Þórarinssonar, stofnvistfræðings Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem birt er á vef samtakanna.

Segir í henni að þar sem sjávarútvegur sé mikilvæg stoð efnahagslífs Íslendinga höfum við átt engan annan kost en að takast á við tvíþættan vanda ofveiði og óhagkvæmni af fullri alvöru.

Dregið verulega úr veiðiálagi eftir 1992

„Þetta var gert með því að innleiða markvissa fiskveiðistjórnun með nauðsynlegri festu við ákvörðun leyfilegs heildarafla ásamt eftirfylgni með aflaskráningu og eftirliti. Þannig var kerfi aflakvóta við stjórn fiskveiða komið á í áföngum á níunda áratug síðustu aldar og það síðan þróað í átt til virkari stjórnunar heildarafla og aukins sveigjanleika með framsali á tíunda áratugnum og síðar,“ segir í grein Kristjáns.

„Í kjölfar ráðgjafar frá árinu 1992 um alvarlega stöðu þorskstofnsins var dregið verulega úr veiðiálagi. Um miðjan tíunda áratuginn voru Íslendingar síðan meðal leiðandi þjóða í þróun langtíma aflareglna í fiskveiðum. Aflareglum er ætlað að tryggja að veiðiálag sé hóflegt og nýtingin sjálfbær. Mikilvægt markmið með minnkun veiðiálags á þorskinn var að gera stofninum mögulegt að vaxa og ná fyrri stærð. Stór veiðistofn gerir veiðar hagkvæmari og stór og fjölbreyttur hrygningarstofn er talinn hafa meiri möguleika á að geta af sér stærri nýliðunarárganga.“

Stærri stofni fylgir aukinn afli á sóknareiningu
Stærri stofni fylgir aukinn afli á sóknareiningu mbl.is/Þorgeir Baldursson

Hélt í gegnum fjármálakreppuna

„Árið 2007 var veiðihlutfall þorsks samkvæmt aflareglu lækkað úr 25% í 20% af viðmiðunarstofni fiska fjögurra ára og eldri. Eftir stutt aðlögunarskeið var þessi stefna fest í sessi um mitt árið 2009 þegar íslensk stjórnvöld staðfestu á ný formlega aflareglu um stjórn veiðanna til lengri tíma. Nýtingarstefna þessi miðar að vernd og sjálfbærri nýtingu þorskstofnsins, byggt á bestu fáanlegri vísindaráðgjöf, í samræmi við alþjóðasamninga og alþjóðleg viðmið. Það er afar sannfærandi að nýtingarstefnan skuli hafa haldið í kjölfarið í gegnum fjármálakreppuna og þannig lagt sitt af mörkum til efnahagsbatans.

Með hóflegu veiðiálagi undanfarin ár hafa þorskárgangar hver af öðrum lifað lengur og tekið út meiri vöxt og þannig gefið meiri afla og lagt meira til hrygningarstofnsins en ella. Úr því takmarkaða efni sem felst í tiltölulega litlum árgöngum hefur hrygningarstofninn, sem eðli málsins samkvæmt er samsettur af eldri fiski, tvöfaldast að stærð á undanförnum áratug. Stærri stofni fylgir aukinn afli á sóknareiningu (t.d. fleiri tonn á hvern togtíma), sem skilar sér í aukinni hagkvæmni veiðanna. Jafnframt leiðir stærri stofn til minni áhættu af veiðum, sem aftur stuðlar að sjálfbærri nýtingu.“

Nauðsynleg undirstaða öflugs sjávarútvegs

Á undanförnum árum hafi stjórnvöld sett aflareglur um veiðar þriggja tegunda botnfiska —ýsu, ufsa og gullkarfa — til viðbótar við þorskinn.

„Þessar veiðar hafa síðan fengið vottun eftir alþjóðlegum sjálfbærnikröfum samkvæmt fiskveiðistjórnunarstaðli Ábyrgra fiskveiða, sem gerir kröfu um formlega nýtingarstefnu (aflareglu) stjórnvalda byggt á svokallaðri varúðarleið. Sömu veiðar, auk annarra, hafa einnig hlotið vottun samkvæmt MSC-staðli.

Ábyrg, sjálfbær og hagkvæm nýting fiskistofna er nauðsynleg undirstaða öflugs sjávarútvegs. Mikilvægt er að nýting fiskistofna á Íslandsmiðum byggist ávallt á þessum grunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,44 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 183,92 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,44 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 183,92 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »