Vilja koma í veg fyrir „stjórnlausar veiðar“

Ísjaki við Ilulisat á Grænlandi. Útlit er fyrir að ísinn …
Ísjaki við Ilulisat á Grænlandi. Útlit er fyrir að ísinn í Norður-Íshafi muni hopa enn frekar. mbl.is/RAX

Samkomulag hefur náðst á milli Bandaríkjanna, Danmerkur f.h. Færeyja og Grænlands, Íslands, Japan, Kanada, Kína, Noregs, Rússlands, Suður-Kóreu og Evrópusambandsins um drög að samningi sem kemur í veg fyrir stjórnlausar fiskveiðar í Norður-Íshafi ef ísinn þar hopar enn frekar og möguleikar til fiskveiða skapast.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Fram kemur þar að samkomulagið hafi náðst á fundi sem haldinn var í Washington D.C. dagana 28.-30. nóvember, og varði stjórnun fiskveiða, samstarf um vísindarannsóknir og vöktun fiskistofna og lífríkis í Norður-Íshafi.

Guðlaugur Þór Þórðarson ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni.
Guðlaugur Þór Þórðarson ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni. mbl.is/Golli

Tónar vel við nýjan stjórnarsáttmála

„Þetta er afar mikilvægt samkomulag þar sem tekist hefur að fá þjóðirnar sem að honum standa til að sýna ábyrgð og framsýni varðandi þær miklu breytingar sem fyrirsjáanlegar eru í norðurskautinu vegna loftslagsbreytinga. Samkomulagið tónar vel við nýjan stjórnarsáttmála þar sem áhersla er lögð á umhverfisvernd og sjálfbærni á norðurslóðum,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

„Það er ánægjulegt að samkomulag hefur náðst um þetta viðkvæma hafsvæði með þeim tíu ríkjum sem eiga hvað mestra hagsmuna að gæta af samstarfi í vísindarannsóknum og sjálfbærri nýtingu auðlinda á Norðurslóðum,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ákvæði um nýja fiskveiðistjórnunarstofnun

Samningurinn er sagður ná til úthafsins og felur í sér að aðilar hans munu skuldbinda sig til að heimila ekki veiðar á samningssvæðinu fyrr en vísindarannsóknir hafa lagt grunn að sjálfbærum fiskveiðum. Einnig eru ákvæði um vísindasamstarf og ákvarðanatöku um að koma á fót fiskveiðistjórnunarstofnun þegar slíkt er tímabært.

„Ekki er fyrirsjáanlegt að mögulegt verði að stunda fiskveiðar á samningssvæðinu á allra næstu árum. Á grundvelli varúðarnálgunar ákváðu aðilarnir hins vegar að stofna til samnings nú til að fyrirbyggja stjórnlausar veiðar á þessu viðkæma hafsvæði á komandi árum þar sem hraðar breytingar eiga sér nú stað vegna hlýnunar og bráðnunar íss,“ segir í tilkynningunni.

„Að þessu leyti er um að ræða tímamótasamning. Með aðild Íslands að þessum samningi mun aðkoma Íslands að ákvarðanatöku og rannsóknasamstarfi á þessu mikilvæga hafsvæði verða tryggð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »