Nýr Ford Mondeo frumsýndur á laugardag

Brimborg frumsýnir nýjan ford Mondeo 7. mars.
Brimborg frumsýnir nýjan ford Mondeo 7. mars.

Ford á Íslandi frumsýnir nýjan Ford Mondeo á laugardaginn kemur, milli klukkan 12 og 16 í sýningarsal Ford í Reykjavík að Bíldshöfða 6 og hjá Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5.

Um er að ræða aðra frumsýninguna á 20 ára afmælisári Ford hjá Brimborg en í byrjun janúar var nýr Ford Focus frumsýndur.

„Nýr Ford Mondeo er nýr að utan sem innan. Um er að ræða gjörsamlega nýjan bíl frá grunni. Útlit hans er bæði glæsilegt og fágað. Nýja grillið er voldugt og straumlínulaga ljósin gefa bílnum sérstaklega fallega ásýnd. Öll innréttingin er ný sem og vandað og fallegt sætisáklæðið. 

Nýr Ford Mondeo er það stór að hann rúmar auðveldlega fimm manns og farangurinn sem fylgir þeim fjölda. Vel fer um alla, hvort sem setið er í fram- eða aftursætum. Fóta- og höfuðrými er mjög rúmt. 

Ferðalög með alla fjölskylduna og mikinn farangur er leikur einn á Ford Mondeo. Það skiptir ekki máli hvort um sé að ræða 5 dyra eða station, það er alltaf nóg pláss,“ segr í tilkynningu frá Brimborg vegna frumsýningarinnar.

Stór en sparneytinn

Nýr Ford Mondeo er í boði með sparneytnum bensín- eða dísilvélum. Bensínvélarnar eyða frá einungis 5,8 lítrum á hundraðið og losun koltvísýrings er frá aðeins 134 g/km. Eru vélarnarn byggðar á hinni margverðlaunuðu EcoBoost tækni. 

Dísilvélarnar eyða frá einungis 4,4 lítrum á hundraðið
og losun koltvísýring frá aðeins 115 g/km. Vélarnar búa yfir Auto-Start-Stop búnaði og standast einnig ströngustu kröfur Euro 6 losunarstaðlanna. 

Ný vélatækni Ford hjálpar við að draga úr rekstrarkostnaði og losun en skilar á sama tíma krafti og góðum afköstum. Þá hefur Mondeo-bíllinn
fengið lof fyrir framúrskarandi aksturseiginleika. Býr hann nú yfir endurbættri fjöðrun sem skilar enn betri aksturseiginleikum og hljóðlátara innra rými.

5 stjörnu öryggi

Ford Mondeo hlaut hæstu einkunn í árekstraprófunum Evrópsku umferðaröryggisstofnunarinnar Euro NCAP. Er hann hlaðinn öryggisbúnaði eins og öryggispúða fyrir ökumann og farþega í framsæti, öryggispúða í hliðum framsæta og við hliðarglugga. Einnig er öryggispúði við hné ökumanns. Alls eru sjö öryggispúðar í nýja Ford Mondeo.

Til að auka enn frekar öryggi nýjum Mondeo er árekstravörn (Active City Stop) einnig staðalbúnaður. Hún fylgist með því að ökumaður sé í hæfilegri fjarlægð frá bílnum á undan og hemlar sjálfkrafa sé hætta á aftanákeyrslu.

Ford býður nú í fyrsta skipti í Evrópu öryggispúða í sætisbeltum í aftursætum. Inn í öryggisbeltinu eru öryggispúðar sem blása út við árekstur og veita þannig enn betri vörn. Þessi búnaður er fáanlegur sem aukabúnaður.

Nýjung frá Ford

Ford Mondeo er fáanlegur með Ford Dynamic LED aðalljósum sem er nýjung frá Ford. Þau hreyfast í takt við akstursstefnu bílsins og hjálpa þannig ökumanni að sjá hvað er framundan í beygjum. Þau skynja líka umferð á móti og slökkva því háuljósin ef á þarf að halda og kveikja þau síðan á aftur þegar bíllinn sem mætt var er kominn fram hjá. Á gatnamótum þá lýsa þau sérstaklega í þá átt sem stefnuljósið gefur til kynna að hafi verið valin.

Bílagagnrýnendur helstu bílablaða og annarra miðla hafa lofað hinn nýja Ford Mondeo. Var hann meðal annars valinn fyrirtækjabíll ársins af bílablaðamönnum í Danmörku og fjölskyldubíll ársins í Bretlandi.

Reynsluakstur í boði

Áhugasamir eru hvattir til að kíkja við á laugardaginn milli kl. 12 og 16 og prófa nýjan Ford Mondeo.

Ford Mondeo er fjölskyldubíll árins 2015 í Bretlandi.
Ford Mondeo er fjölskyldubíll árins 2015 í Bretlandi.
Ford Mondeo er fjölskyldubíll árins 2015 í Bretlandi.
Ford Mondeo er fjölskyldubíll árins 2015 í Bretlandi.
mbl.is