BL innkallar 1.989 bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. að innkalla þurfi 1.462 Nissan-bifreiðar af gerðunum Double Cab, Almera, Patrol, Terrano og X-Trail. Einnig hafa 527 Subaru-bifreiðar af gerðinni Impreza/WRX verið innkallaðar. Um er að ræða bíla af árgerðum 2004 - 2007.

Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á loftleka á loftpúðahylki farþegamegin sem getur orsakað að raki komist inn í loftpúðann með þeim afleiðingum að ef púðinn virkjast við óhapp getur hann ekki blásið rétt upp og möguleiki er á að púðinn losni frá festingu sinni. Raki skemmir búnað loftpúðans með möguleika á yfirþrýstingi frá honum við virkjun hans.

BL ehf. mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.


 
mbl.is