Blondínan stöðvaði umferðina

Dansandi blondínan „stöðvar“ umferðina.
Dansandi blondínan „stöðvar“ umferðina.

Betur fer á því að bílstjórar hafi hugan við aksturinn í stað þess að glápa á dillandi blondínur við vegarkant.

Að því komust alla vega þrír ökumenn um nýliðna helgi er þeir veittu athygli létt klæddri konu sem dansaði við vegarkant undir taktfastri tónlist - og horfðu helst til lengi, alla vega sá fremsti sem hægði verulega ferðina. 

Afleiðingin varð þriggja bíla árekstur, svo sem sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Atvikið átti sér stað í Brasilíu og er hermt að konan unga hafi verið á leið á kjötkveðjuhátíð ásamt samferðafólki sínu.

mbl.is