Zica fær nýtt nafn

Hinn nýi bíll Tata „Zica“ fær nýtt nafn vegna veirunnar …
Hinn nýi bíll Tata „Zica“ fær nýtt nafn vegna veirunnar alræmdu. mbl.is/afp

Indverski bílsmiðurinn Tata Motors hafði vart kynnt nýjan bíl til sögunnar er fyrirtækið neyddist til að gefa honum nýtt nafn.

Ástæðan er hin alræmda veita Zica sem nú skelfir heimsbyggðina. Tata kynnti í byrjun febrúar nýja bíl til sögunnar með þessu sama nafni. Það verður hins vegar ekki langlíft, hvort sem segja má að það sé að kenna eða þakka Zica-veirunni.

Bíllinn er nú sýndur á stærstu bílasýningu Indlands ár hvert, Autio Show 2016, við Nýju Delhí. Þar sem nýtt nafn hefur ekki verið fundið ber hann þar áfram nafnið sem mun hverfa.

mbl.is