Tivoli frumsýndur hjá Benna

Jeppinn SsangYong Tivoli verður frumsýndur hjá Bílabúð Bennna á morgun, …
Jeppinn SsangYong Tivoli verður frumsýndur hjá Bílabúð Bennna á morgun, laugardag.

Bílabúð Benna frumsýnir á morgun, laugardag, fjórhjóladrifna sportjeppann Tivoli frá suður-kóreska bílsmiðnum SsangYong í Suður-Kóreu.

Í fréttatilkynningu frá Bílabúð Benna segir, að allt frá stofnun 1954 hafi SsangYong verið leiðandi bílaframleiðandi í Suður-Kóreu og notið virðingar fagmanna fyrir tæknilegar lausnir og framúrskarandi hönnun.

Tivoli er nýjasta viðbótin við jeppalínuna frá SsangYong. Áður hefur Íslendingum staðið til boða Rexton og Korando, sem notið hafa vinsælda hérlendis. Sportjeppinn Tivoli hefur vakið athygli, enda bíllinn allt í senn, flottur, ríkulega búinn, fjórhjóladrifinn og lipur í akstri.

Frumsýning Tivoli fer fram hjá Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8, og stendur yfir frá klukkan 12 til 16,  og jafnframt hjá Bílabúð Benna, Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ.

mbl.is