Bílalest frá Heklu fer um landið

Mitsubishi Outlander Phev verður í Heklulestinni.
Mitsubishi Outlander Phev verður í Heklulestinni.

Úrval nýrra bíla frá bifreiðaumboðinu Heklu leggur á mánudag upp í ferð hringinn í kringum landið. Ferðin stendur yfir í viku og verða 26 staðir heimsóttir.

Í bílaflotanum verða bílar frá Volkswagen, Skoda, Mitsubishi og Audi. Má þar nefna Skoda Superb 4x4, Volkswagen Passat Alltrack, Mitsubishi Outlander Phev, Volkswagen Caddy og Audi Q7.

Ferðin hefst á Norðurlandi og endar á Hellu. Fyrsti áfangastaður er Hvammstangi og á hverjum stað verður boðið upp á reynsluakstur auk þess sem gestir og gangandi geta skráð sig í skemmtilegan leik þar sem meðal annars er hægt að vinna stúkumiða á tónleika Justin Bieber og veglegan ferðavinning, en dregið verður úr pottinum þann 16. júní.

„Þetta verður afar skemmtilegt og við munum fara víða en þrír til fjórir staðir verða heimsóttir á dag,“ segir Gestur Benediktsson, sölustjóri Skoda, sem er einn af átta starfsmönnum Heklu sem tekur þátt í hringferðinni.

 „Það verða átta bílar með í hringferðinni og við munum bjóða upp á reynsluakstur og alls kyns skemmtilegheit. Við verðum með myndavélina á lofti og fólk getur fylgst með ferðinni á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #heklusumar. Einnig minnum við á Facebook-síðu Heklu þar sem fréttir af ferðinni munu koma inn reglulega á meðan henni stendur,“ bætir Gestur við.

Heklulestin hefur viðkomu á eftirfarandi stöðum:

Mánudagurinn 30. maí:
Hvammstangi, við Félagsheimilið, frá kl. 14-15
Blönduós, N1, frá kl. 17-18
Skagaströnd, Olís, frá kl. 20-21

Þriðjudagurinn 31. maí:
Sauðárkrókur, KS Bíla og vélaverkstæði, frá kl. 10-12
Siglufjörður, Olís, frá kl. 14-16
Ólafsfjörður, Olís, frá kl. 17-18
Dalvík, N1, frá kl. 20-21

Miðvikudagurinn 1. júní:
Húsavík, N1,  frá kl. 10-11
Kópasker, N1,  frá kl. 13-14
Raufarhöfn, N1, frá kl. 16-17
Þórshöfn, N1, frá kl. 20-21

Fimmtudagurinn 2. júní:
Vopnafjörður, Kauptún, frá kl. 10-11
Egilsstaðir, Bílaverkstæði Austurlands, frá kl. 14-16
Seyðisfjörður, Orkuskálinn, frá kl. 17-18
Reyðarfjörður, Olís, frá kl. 20-21

Föstudagurinn 3. júní:
Neskaupstaður, Olís, frá kl. 10-11
Eskifjörður, Samkaup, frá kl. 13-14
Fáskrúðsfjörður, Kaffi Sumarlína, frá kl. 16-17
Stöðvarfjörður, Saxa Fjarðarbraut, frá kl. 18-19

Laugardagurinn 4. júní:
Breiðdalsvík, Hótel Bláfell, frá kl. 10-11
Djúpivogur, Samkaupsplan, frá kl. 13-14
Höfn í Hornafirði, Olís, frá kl. 17-19

Sunnudagurinn 5. júní:
Kirkjubæjarklaustur, N1 Skaftárskáli, frá kl. 10-11
Vík, N1 Víkurskáli, frá kl. 13-14
Hvolsvöllur, Hlíðarendi, frá kl. 16-17
Hella, Olís, frá kl. 18-19

Skoda Superb 4x4.
Skoda Superb 4x4.
Volkswagen GTE
Volkswagen GTE
Audi Q7.
Audi Q7.
Volkswagen Caddy Maxi.
Volkswagen Caddy Maxi.
mbl.is