Saga vörðuð tækniframförum

Dixi er fyrsti bíllinn sem BMW framleiddi, með enskar rætur.
Dixi er fyrsti bíllinn sem BMW framleiddi, með enskar rætur. mbl.is/Wikimedia/commons

Ein öld er á þessu ári frá því að þýski bílsmiðurinn BMW hóf starfsemi. Nafnið (Bayerische Motoren Werke) dregur dám af meginstarfseminni í fyrstu, vélaframleiðslu.

Má segja að saga BMW sé vörðuð einstökum tækniframförum á sviði vélaþróunar og leiðandi gæðahönnunar. Tímamótum þessum var fagnað um helgina með sérstakri afmælissýningu hjá BL, umboðsaðila BMW hér á landi, um helgina.

Frumsýndir voru fimm nýir bílar frá BMW og bar þar hæst sportbílana BMW i8 og M2 auk flaggskipsins BMW 7 og sérstakrar 100 ára afmælisútgáfu af BMW X5 og BMW 5 Series. Þá var rafbíllinn i3 einnig frumsýndur.

BMW varð til í mars 1916 við sameiningu þriggja iðnfyrirtækja, þar á meðal framleiðanda flugvélamótora og bílaframleiðanda. Í fyrstu var þróun og framleiðsla flugvélamótora þungamiðjan í starfseminni. Dró til tíðinda á því sviði 17. júní 1919 er DFW F37 tvíþekju með 250 hestafla vatnskældum BMW-mótor var flogið í tæplega 10 km hæð, 32.000 feta. Það var heimsmet og sagði flugmaðurinn, Franz-Zeno Diemer, að hann hefði komist hærra hefði hann tekið með sér nægar súrefnisbirgðir.

Tímamótavélfákur BMW R 32

Vegna ákvæða stríðslokasamkomulagsins frá Versölum var BMW knúið til að hætta þróun og smíði flugvélamótora eftir fyrri heimsstyrjöld, sem lauk 1918. Sneri fyrirtækið sér að þróun og framleiðslu á bifhjólamótorum, til að byrja með fyrir aðra framleiðendur.

Árið 1923 hannaði og kynnti BMW svo sitt eigið mótorhjól, BMW R 32. Það olli þáttaskilum vegna sportlegs og rómantísks yfirbragðs þar sem hönnunin hverfðist um mótorinn, sem varð þá um leið helsta þungamiðja í útliti hjólsins. Þetta hjól var með svonefndri „boxer“-vél sem átti eftir að marka tímamót. Nýbreytni BMW átti eftir að hafa áhrif á aðra mótorhjólaframleiðendur.

Byrja með Dixi

Fyrsti bíllinn sem BMW framleiddi – og sá sem renndi stoðum undir fyrirtækið sem bílsmið – var hinn svonefndi Dixi, sem grundvallaður var á Austin 7 og framleiddur með leyfi breska bílaframleiðandans Austin Motor Company í Birmingham á Englandi.

Tímamót urðu í sögu BMW árið 1936, en þá kom sportbíllinn BMW 328 fram á sjónarsviðið. Hann markaði nýtt upphaf í akstursíþróttum og varð afar sigursæll á fjórða áratugnum. Hann hafði áður óþekkta snerpu og hröðun og þótti einstaklega meðfærilegur í akstri. Bíllinn var aðeins 780 kg, að miklu leyti smíðaður úr áli og með litla en afkastamikla 80 hestafla vél. Þetta þótti einstaklega frumlegt enda fór enginn tími til spillis á kappakstursbrautinni í Nürburgring 14. júní 1936 þar sem hann gjörsigraði keppinautana – strax fyrsta daginn sem hann var sýndur opinberlega.

Fremstir í flokki á X5

BMW þótti koma á óvart á bílasýningunni í Detroit í Bandaríkjunum í janúar 1999 er það kynnti til sögunnar rúmgóðan fjórhjóladrifinn og sportlegan lúxusjeppa. Enn var langt í land í þá sprengingu í smíði sportjeppa sem við þekkjum nú, er BMW reið á vaðið með X5-bílnum. Aksturseiginleikar hans voru rómaðir, rými og þægindi einnig og torfærugeta.

Umhverfismál hafa verið stjórnendum BMW hugleikin og hefur fyrirtækið kynnt margvíslegar tæknilausnir sem dregið hafa úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. Sem dæmi má nefna að árið 1955 kynnti BMW fyrsta fjöldaframleidda smábíl heims, Isetta, sem eyddi aðeins þremur lítrum á hundraðið. Var þar um að ræða ítalskan bíl sem BMW framleiddi samkvæmt leyfi og brúkaði í sína útgáfu umbreytta mótorhjólavél. Náði hann nokkrum vinsældum og styrkti aftur stöðu BMW sem bílsmiðs. Varð Isetta söluhæsti eins strokks bíllinn í heiminum þetta sama ár. Árið 1973 varð BMW svo fyrsti bílaframleiðandinn til að setja á laggir starf framkvæmdastjóra umhverfismála til að samræma og efla áherslur BMW í málaflokknum.

Rafbíll kemur til skjalanna

Árangur af þessum áherslum er meðal annars sá að undanfarin 15 ár hefur BMW vermt efsta sætið í svonefndri sjálfbærnivísitölu RobecoSAM í flokki bílaframleiðenda. Þá hefur BMW minnkað útblástur bíla sinna um 40% frá árinu 1990. Á grunni þeirrar reynslu sem aflað hefur verið undanfarna áratugi innleiddi fyrirtækið BMW Efficient Dynamics-tæknina árið 2007 sem leggur höfuðáherslu á akstursánægju og afköst en um leið lágmörkun eldsneytiseyðslu og útblásturs.

Segja má að það hafi svo verið rökrétt afleiðing af áherslum BMW í umhverfismálum er þýski lúxusbílsmiðurinn kynnti árið 2013 lítinn, léttan en kraftmikinn rafmagnsbíl, BMW i3. Hefur hann hlotið góðar viðtökur víða, en hann var meðal gripa sem frumsýndir voru á afmælissýningu BMW hjá BL. Sala á honum hér á landi hefst síðar á árinu.

21. maí, þar sem frumsýndir verða fimm nýir bílar auk annarra sem BL státar af í sýningarsalnum. Hæst ber sportbílana BMW i8 og M2 auk flaggskipsins BMW 7 og sérstakrar 100 ára afmælisútgáfu af BMW X5 og BMW 5 Series. Þá verður rafmagnsbíllinn i3 einnig frumsýndur hjá BL en hann fer í sölu hjá BL síðar á þessu ári en verður til taks fyrir reynsluakstur á laugardaginn.

agas@mbl.is

BMW R32 mótorhjólið með boxer-vél markaði þáttaskil. Hönnunin var hugvitsamleg …
BMW R32 mótorhjólið með boxer-vél markaði þáttaskil. Hönnunin var hugvitsamleg á marga vegu. mbl.is/Wikipedia/CC BY-S
Isetta eyddi aðeins þremur lítrum á hundraðið. Geri aðrir betur.
Isetta eyddi aðeins þremur lítrum á hundraðið. Geri aðrir betur. mbl.is/Wikipedia CC/Koos
BMW kynnti árið 2013 lítinn, léttan en kraftmikinn rafbíl, BMW …
BMW kynnti árið 2013 lítinn, léttan en kraftmikinn rafbíl, BMW i3. Hefur hann hlotið góðar viðtökur víða.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: