BMW X5 besti meðalstóri lúxussportjeppinn

BMW X5 er áreiðanlegasti meðalstóri lúxussportjeppinn, að mati JD Power.
BMW X5 er áreiðanlegasti meðalstóri lúxussportjeppinn, að mati JD Power.

Í niðurstöðum árlegrar könnunar greiningafyrirtækisins J.D. Power á gæðum nýrra bíla á bandaríska markaðnum kemur í ljós að BMW X5 er áreiðanlegasti meðalstóri lúxussportjeppinn.

Niðurstöður J.D. Power sýna fjölda bilana eða tilfella sem þarf að láta athuga á hverja 100 bíla fyrstu 90 dagana frá því að nýi bíllinn var afhentur. Eftir því sem talan er lægri er áreiðanleikinn meiri.

Auk þess sem BMW X5 er sá besti í sínum flokki og X6 næstbestur hlaut BMW 2 Series annað sæti í flokki lítilla lúxusbíla, BMW X3 það þriðja í flokki minni lúxussportjeppa og hinn nýi BMW X1 sömuleiðis í flokki lítilla lúxussportjeppa. BMW 3 Series hlaut svo þriðja sæti í flokki minni lúxusbíla.

Þrátt fyrir að finna megi sífellt meiri og flóknari hátæknibúnað í nýjum bílum, bæði til að auka þægindi farþega en ekki síst til að auka öryggi í umferðinni, fer áreiðnaleiki nýrra bíla vaxandi samkvæmt niðurstöðum J.D. Power. Segir fyrirtækið, að áreiðanleiki nýrra bíla hafi aukist um 6% frá könnuninni 2015 þegar hann jókst um 3% frá fyrra ári.

Niðurstöðurnar í ár eru mesta framfaraskref til aukinna gæða frá 2009 þrátt fyrir æ flóknari hátæknibúnað sem margir myndu búast við að kölluðu á fleiri „hnökra“. Því er semsagt þveröfugt farið og má geta þess að BMW sem framleiðandi er langt fyrir ofan meðaltalið á gæðastuðli J.D. Power.

mbl.is