Öflugasti Golf GTI frá upphafi í Heklu

Öflugasti Golf GTI frá upphafi er kominn í Heklu.
Öflugasti Golf GTI frá upphafi er kominn í Heklu.

Golf GTI fagnaði í ár fertugsafmælinu og af því tilefni var öflugasti Golf GTI frá upphafi kynntur til sögunnar. Hann kallast Golf GTI Clubsport Edition 40 og er ætlaður vandlátum ökumönnum sem vilja betri aksturseiginleika, ögn meiri dirfsku og styrk.

Undir vélarhlífinni á Clubsport er fjögurra strokka, tveggja lítra forþjöppuð bensínvél með beinni innspýtingu sem skilar 265 hestöflum. Hámarkshraðinn er 250 km/klst. og hann er í 5,9 sekúndur í hundraðið. Ekki nóg með það heldur er vélin útbúin „overboost“ búnaði sem eykur kraftinn upp í 290 hestöfl í allt að 10 sekúndur.

Golf GTI Clubsport er ekki aðeins með meira afl undir húddinu heldur hafa fjöðrunin og loftmótstaðan verið endurbætt. Með vindkljúfi á þakinu og breyttum framstuðara næst meiri vængpressa og þar af leiðandi eykst stöðugleiki og veggrip. Þannig nær Golf GTI Clubsport miklum stöðugleika á miklum hraða og í hröðum beygjum.

Það sem aðgreinir ytra útlit Clubsport frá hefðbundnum Golf GTI er framstuðarinn sem skartar aukaflipum á sitt hvorri hliðinni, öðruvísi hliðarsvuntur, breytt lögun á vindkljúfi á þaki og svunta sem er innbyggð í afturstuðarann. Svörtu skreytingarnar á hliðunum er vísun í upphaflega Golf GTI frá 1976 og svarta þakið og hliðarspeglarnir gefa Clubsport yfirbragð kappakstursbíls. 18 tommu álfelgur setja svo punktinn yfir i-ið. Að innan skartar Clubsport vandaðri hönnun. Sportsætin eru að hluta til klædd Alcantara-leðri og köflóttu mynstri og GTI merkið er saumað í höfuðpúðana.

Nú er þessi magnaði bíll kominn í sýningarsali Heklu við Laugaveg. Er sjón líklega sögu ríkari.

Öflugasti Golf GTI frá upphafi er rennilegur og kraftmikill.
Öflugasti Golf GTI frá upphafi er rennilegur og kraftmikill.
Sætin eru sportleg í Golf GTI.
Sætin eru sportleg í Golf GTI.
Öflugasti Golf GTI frá upphafi er kominn í Heklu.
Öflugasti Golf GTI frá upphafi er kominn í Heklu.
Öflugasti Golf GTI frá upphafi er kominn í Heklu.
Öflugasti Golf GTI frá upphafi er kominn í Heklu.
Vindskeið á þakendanum eykur vængpressu hins öfluga Golf GTI.
Vindskeið á þakendanum eykur vængpressu hins öfluga Golf GTI.
mbl.is