Suzuki innkallar 827 bíla

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Suzuki-bílum um innköllun á 827 Suzuki Swift-bifreiðum af árgerðum 2010 til 2015. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Ástæða innköllunarinnar er sú að þegar sætishitari er notaður og hitastig hans eykst gæti límborði sem festir hitamottuna tapað eiginleikum sínum. Ennfremur, ef lóðrétt álag er á miðri sætissetu getur hitamottan samanbrotin farið ofan gróp sem gerð er í framleiðslu setunnar. Við þetta ástand þar sem hitamottan er samanbrotin hitnar setan óhóflega og brennur. Skipta þarf um sætishitaramottu.

Suzuki-bílar hf. munu hafa samband við bifreiðaeigendur vegna þessarar innköllunar.

mbl.is