Keppa í sparakstri til Akureyrar

Ómar Ragnarsson ræsir keppendur af stað í Sparaksturskeppni FÍB og …
Ómar Ragnarsson ræsir keppendur af stað í Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu. mbl.is/Árni Sæberg

Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu fer fram í dag, föstudaginn 26. ágúst 2016. Hefst hún klukkan 09:00 þegar Ómar Ragnarsson ræsir fyrsta keppnisbílinn af þeim 19 sem þátt taka í þetta skiptið.

Keppnisleiðin er þjóðvegur númer eitt frá Reykjavík, um Hvalfjarðargöng til Akureyrar, samtals rúmlega 380 kílómetra löng. Markmiðið er að komast keppnisleiðina á sem minnstu eldsneytismagni.

Samkvæmt reglum keppninnar eru ökumönnum settar þær skorður að aksturinn skuli að öllu leyti vera innan ramma umferðarlaga og -reglna. Keppendur eru í upphafi ferðar áminntir um að virða þau hámarkshraðamörk sem í gildi eru á allri keppnisleiðinni, sem og aðrar umferðarreglur, aka í takti við aðra umferð og gæta þess að trufla ekki né tefja aðra vegfarendur, t.d. með of hægum eða of hröðum akstri.

Vel verður fylgst með akstrinum og eru keppnisbílarnir útbúnir með Arctic Track-staðsetningartækjum sem skrá allar hreyfingar þeirra. Hver sem er getur fylgst með akstrinum og framvindu keppninnar í beinni útsendingu á Netinu. Sérstakur hlekkur inn á þessa beinu útsendingu verður af heimasíðu FÍB. Hann verður orðinn virkur þegar keppnin hefst.

Í tilkynningu frá FÍB segir, að búast megi við að fyrstu keppnisbílar aki í mark á Glerártorgi á Akureyri upp úr klukkan 14:00 í dag, föstudag, og að keppni ljúki og úrslit liggi fyrir um klukkan 16, ef ekkert óvænt gerist.

mbl.is