Mesta sala Kia á einu ári hjá Öskju

Kia Niro.
Kia Niro.

Á þessu ári hefur Bílaumboðið Askja afhent 1.350 nýjar Kia bifreiðar sem eru fleiri en allt árið í fyrra þegar 1.348 Kia bílar voru afhentir.

Þetta er metsala í Kia bifreiðum á Íslandi en hvergi í Evrópu er markaðshlutdeild Kia eins há og hér á landi.

„Bílasala hefur aukist umtalsvert á árinu en við eigum enn talsvert inni. Einstaklingar eru ekki komnir af stað af sama krafti og var t.d. árin 2005-2007," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.

Kia hefur verið að koma með nýja og spennandi bíla m.a. nýjan Sportage og hinn nýja Niro, sem Askja kynnti í byrjun september. Auk þess eru væntanlegir þrír nýir Kia bílar á næstu sex mánuðum. Kia er þriðja mest selda merkið á Íslandi það sem af er ári, á eftir Volkswagen og Toyota. Kia Sportage var mest seldi bíllinn á Íslandi í ágúst síðastliðnum.

mbl.is