Nýr B-Class rafbíll dregur allt 230 km

Nýi Mercedes-Benz B-Class rafbíllinn dregur allt upp í 230 km …
Nýi Mercedes-Benz B-Class rafbíllinn dregur allt upp í 230 km við bestu aðstæður.

Nýr Mercedes-Benz B-Class rafbíll hefur verið kynntur til leiks en þetta er fyrsti hreini rafbíllinn frá þýska lúxusbílaframleiðandanum sem frumsýndur er hér á landi.

Rafbíllinn hefur drægni upp á allt að 230 kílómetra við bestu aðstæður og þar spilar byltingarkenndur Range Plus tæknibúnaður bílsins inn í. Með því að ýta á takka í mælaborðinu fer Range Plus búnaðurinn í gang og eykur drægni bílsins um allt að 30 km.

B-Class er aflmikill bíll og snar í snúningum. Rafmótorinn skilar 179 hestöflum og togið er 340 Nm. Hröðunin úr kyrrstöðu upp í 100 km hraða er aðeins 7,9 sekúndur.

Hleðslutími bílsins er þrjár klukkustundir í heimahleðslustöð. B-Class rafbíllinn er vel búinn nýjasta aksturs- og öryggisbúnaði frá Mercedes-Benz. Bíllinn hefur síðustu daga verið til sýnis á Brand Energy ráðstefnunni í Hörpunni.
mbl.is