Toyota kynnir nýjan Proace

Toyota Proace sendi- og fjölnotabíllinn er til margra verka velfallinn.
Toyota Proace sendi- og fjölnotabíllinn er til margra verka velfallinn.

Toyota kynnti nýjan Proace sendi- og fjölnotabíl fyrir blaðamönnum í Póllandi, nánar tiltekið í Varsjá og nærsveitum, í síðustu viku.

Bíllinn verður fáanlegur í þremur lengdum og margvíslegum útfærslumöguleikum sem sníða má að hvers konar flutninga- og atvinnustarfsemi. Bæði verður til að mynda hægt að fá bílinn ætlaðan til fólksflutninga og einnig með tómt flutningsrými.

Proace verður einnig fáanlegur í Verso-útgáfu sem rúmar allt að níu farþega og kemur í þremur gerðum, Shuttle, Family og VIP.

Toyota Proace kemur í sölu hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota á næstu vikum.

jonagnar@mbl.is

Toyota Proace sendi- og fjölnotabíllinn er til margra verka velfallinn.
Toyota Proace sendi- og fjölnotabíllinn er til margra verka velfallinn.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: