„Rafbílar eru framtíðin“

Nýi Mercedes Benz hugmyndabíllinn „Generation EQ“ á bás bílsmiðsins á …
Nýi Mercedes Benz hugmyndabíllinn „Generation EQ“ á bás bílsmiðsins á sýningunni í París. AFP

„Rafbílar eru framtíðin,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, sem var viðstaddur blaðamannafund Mercedes-Benz þegar þýski bílrisinn kynnti framtíðar rafbíl sinn á bílasýningunni í París.

Um er að ræða hreinan rafbíl sem hefur fengið heitið Generation EQ og er nýtt vörumerki innan Mercedes-Benz. Er hér um að ræða sportjeppa á hugmyndastigi, en EQ mun standa fyrir framleiðslu hreinna rafbíla.

Generation EQ er með tvo rafmótora sem framleiða 300 kW af hreinu afli og drægni bílsins er 500 km. Mercedes-Benz mun einnig vera búið að þróa aukadrægni upp á 150 km. Það mun ekki vanta aflið í Generation EQ því sportjeppinn kemst úr kyrrstöðu í hundraðið á innan við 5 sekúndum, að sögn Mercedes.

Bíllinn er framúrstefnulegur og fagurlega hannaður að innan sem utan. Hann er búinn öllum fremsta aksturs- og öryggisbúnaði og er næsta skref inn í bíla framtíðarinnar. Á blaðamannafundinum í París sagði forstjórinn Dieter Zetsche, að Daimler hygðist framleiða níu nýja, hreina rafbíla til ársins 2026.

Markaðshlutdeild rafbíla í Evrópu í dag er innan við eitt prósent. En hlutirnir eru að breytast og því er spáð af mörgum innan bílageirans að innan tíu ára verði annar hver seldur bíll rafbíll. Drægi rafbíla mun aukast mjög mikið á næstu árum og rafhlöður verða mun ódýrari og munu kosta jafnvel einungis um einn þriðja af því sem þær kostuðu 2012. Það þýðir að verð á rafbílum á eftir að lækka. Daimler hefur sett þúsund milljón evra í eigin rafhlöðuframleiðslu og þar af fara 500 milljónir evra í að byggja upp aðra rafhlöðuverksmiðju Mercedes-Benz í Þýskalandi. 

„Í dag frumsýndi Mercedes-Benz Generation EQ sem stefnt er á að verði kominn í framleiðslu og á markað eftir þrjú ár. Þetta er flottur jeppi sem henta mun vel á Íslandi. Hann er fyrsti af 9 nýjum, hreinum rafbílum sem Mercedes-Benz stefnir á að setja á markað til ársins 2026,“ segir Jón Trausti í tilkynningu. „Tilkoma EQ  þýðir í raun meira en að þróa og framleiða rafbíla heldur sé einnig verið að endurhugsa bíla og samskipti bíla við notendur sína.  Það má því segja að verið sé að enduruppgötva Mercedes-Benz vörumerkið, elsta bílaframleiðanda heims“.

Í stjórnborði Generation EQ ræður 24 tommu flatskjár ríkjum.
Í stjórnborði Generation EQ ræður 24 tommu flatskjár ríkjum.
Innviðir Generation EQ eru framúrstefnulegir í hugmyndabíl Mercedes-Benz.
Innviðir Generation EQ eru framúrstefnulegir í hugmyndabíl Mercedes-Benz.
Mercedes-Benz Generation EQ
Mercedes-Benz Generation EQ
Mercedes-Benz Generation EQ
Mercedes-Benz Generation EQ
mbl.is