VW borgar 1.813 milljarða í bætur

Sú aðgerð Volkswagen að svindla á útblástursprófum hefur komið fjárhagslega …
Sú aðgerð Volkswagen að svindla á útblástursprófum hefur komið fjárhagslega við kauninn á þýska bílsmiðnum. AFP

Í nýju samkomulagi um bætur vegna útblásturshneykslis hefur Volkswagen samþykkt að borga umboðssölum sínum í Bandaríkjunum 1,2 milljarða dollara - um 137 milljarða íslenskra króna í bætur.

Að baki samkomulaginu eru fjögurra mánaða strangar viðræður, en því er ætlað að koma til móts við skaða sem seljendur VW-bíla í Bandaríkjunum hafa orðið fyrir vegna útblásturshneykslisins.

Báðir aðilar skýrðu frá því 25. ágúst sl., að samkomulag væri í eðli sínu í höfn en lokalotan til að binda lausa enda tók rúman mánuð. Hefur samkomulagið verið lagt fyrir dómsstól í San Francisco í Kaliforníu til staðfestingar.
Volkswagen greiðir helming fjárins út strax og hinn helminginn með 18 jöfnum mánaðarlegum greiðslum. Alls eru umboðssölurnar 652 sem njóta þess og er meðalupphæðin sem þær fá 1,9 milljónir dollara. 
Volkswagen hefur aukinheldur samþykkt að kaupa til baka óselda dísilbíla af umboðunum.

Þetta samkomulag VW og umboðsfyrirtækjanna kemur til viðbótar samtals 14,7 milljarða dollara bótum og sektum sem VW hafði samþykkt að borga vegna útblásturssvindlsins. Nemur það 1676 milljörðum íslenskra. Ná þær bætur til eigenda um 480.000 bíla með 2ja lítra vélum. Enn er eftir að leiða til lykta bætur til um 80.000 eigenda VW dísilbíla með 3ja lítra vélum. Hefur Volkswagen frest út október til að ljúka því máli án inngrips stjórnvalda.

Með samkomulaginu í dag og hinu fyrra hefur Volkswagen fallist á að borga samtals 15,9 milljarða dollara í bætur vegna útblásturshneykslisins eða sem svarar til 1.813 milljarða króna.
mbl.is