Notuðum bílum stórfækkar

Frá Ósló, höfuðborg Noregs.
Frá Ósló, höfuðborg Noregs. mbl.is/afp

Innflutningur á notuðum bílum til Noregs hefur hrunið á árinu og ekkert lát virðist ætla verða þar á.

Samdrátturinn nemur 28,9% það sem af er ári en þessi innflutningur dróst til samanburðar saman um 12,1% í fyrra, árið 2015, og 18,3% árið 2014.

Haldi þróunin áfram stefnir í að 15.466 notaðir bílar verði fluttir inn til Noregs í ár samanborið við 30.312 bíla 2013, að sögn norska viðskiptablaðsins Finansavisen.

Söluhæstu notuðu bílarnir í Noregi í ár eru rafbílarnir Kia Soul Electric og Nissan Leaf. agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: