Fyrsta Toyota C-HR til landsins

Toyota C-HR er leggjalangur tveggja dyra bíll.
Toyota C-HR er leggjalangur tveggja dyra bíll.

Fyrsta eintakið af Toyota C-HR er komið til landsins. Bílsins hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu, að sögn Toyota á Íslandi.

„Nú fær vel valinn hópur fólks að sjá bílinn í fyrsta sinn á forsýningu sem haldin verður í Petersensvítunni í Gamlabíó á fimmtudagskvöld,“ segir í tilkynningu frá umboðinu.

Ekki fer bíllinn upp með lyftunni í Gamlabíó og því voru færustu kranamenn landsins fengnir til að hífa hann upp á svalirnar við Petersensvítuna eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Það er óhætt að segja að bíllinn hafi tekið sig vel út er hann bar við Reykjavíkurhimininn í gær.

Athafnasvæði ökumanns í hinum nýja Toyota C-HR,
Athafnasvæði ökumanns í hinum nýja Toyota C-HR,
mbl.is