Stýrir fyrirtækjasölu hjá Heklu

Ingigerður Einarsdóttir
Ingigerður Einarsdóttir

Ingigerður Einarsdóttir hefur gengið til liðs við Heklu hf. og tekur sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins en hún mun stýra bílasölu til fyrirtækja.

Í tilkynningu um ráðninguna segir, að Ingigerður hafi meðal annars starfað sem sölu- og markaðsstjóri hjá Avis og Budget bílaleigum, gegnt stöðu framkvæmdastjóra Sundsambands Íslands og forstöðumanns sölu- og markaðsmála hjá IGS Ground Services.

Ingigerður er með M.A. gráðu í Alþjóðlegri markaðsstjórnun frá Bournemouth University í Englandi og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði af markaðssviði frá Háskólanum á Akureyri.

Hekla er með umboð fyrir Audi, Mitsubishi, Skoda og Volkswagen og starfa um 150 manns hjá fyrirtækinu. Félagið er leiðandi fyrirtæki í innflutningi, sölu og þjónustu við nýjar og notaðar bifreiðar með ríka áherslu á vistvænar samgöngur.

mbl.is