Sjö keppa um sæmdartitil

Hin nýja útgáfa af Alfa Romeo Giulia á bílasýningunni í …
Hin nýja útgáfa af Alfa Romeo Giulia á bílasýningunni í Los Angeles um miðjan nóvember. AFP

Sjö nýir bílar hafa verið tilnefndir til hinnar eftirsóttu viðurkenningar „Bíll ársins 2017 í Evrópu“. Skýrt verður frá því hver hlýtur hnossið 6. mars næstkomandi, daginn fyrir opnun bílasýningarinnar í Genf.

Sérfræðingar telja að einna sterkast af bílunum sjö standi Alfa Romeo Giulia og nýr Mercedes-Benz E-Class.  Allir bílarnir þykja þó verðugir til verðlaunanna og ógerningur er að spá um hver hinn útvaldi verður.

Hinir fimm eru Citroën C3, Nissan Micra, Peugeot 3008, Toyota C-HR og Volvo V90.
 
Síðast varð Opel Astra fyrir valinu og árið áður Volkswagen Passat.

mbl.is