Strákaferð til Spánar á rall

Jari Matti Latvala tekur hér krappa vinsti beygju á möl. …
Jari Matti Latvala tekur hér krappa vinsti beygju á möl. Ekkert slegið af. AFP

Páll Halldór Halldórsson, víða þekktur sem Rally Palli, brá sér ásamt félögum sínum til Spánar í síðasta mánuði á rallkeppni þar í landi, og var svo vinsamlegur að deila ferðsögunni með lesendum Bílablaðs Morgunblaðsins.

Við gefum Páli þar með orðið: „Menn hafa notað ýmsar afsakanir í gegnum árin til þess að geta ferðast til útlanda, t.d. þurft að skreppa á fundi, árshátíð, sýningar eða annað. En það eru forréttindi að geta sagt við sína eiginkonu: „Heyrðu elskan, ég þarf að fara til Spánar í 6 daga, við strákarnir ætlum að fara að horfa á heimsmeistaramótið í ralli“. Frúin mín svo sem öllu vön, kippir sér ekki mikið upp vegna slíkra frétta. Og sennilega á það sama við um eiginkonur félaganna minna, en við vorum 6 talsins sem skutust út, allt fyrrverandi keppendur í rallinu hér heima.

Við strákarnir ákváðum í febrúar síðastliðnum að fara í þessa ferð, og flug og hótel var því pantað í tíma. Og kannski þess vegna duttum við niður á hótel á afar góðum stað, einungis í 300 m fjarlægð frá höfuðstöðvum rallsins í borginni Salou, um það bil 100 km frá Barcelona. Já, við vorum staðráðnir að komast í sól og blíðu á Spáni í stað þess eins og oft áður hjá okkur félögunum, í ferðum okkar til Wales, í grenjandi rigningu og þoku. Einnig hlökkuðum við mikið til að sjá bílana þjóta hjá á malbikuðum vegunum.

Passarnir sem breyttu öllu

321 km á 19 sérleiðum, 4 keppnisdagar og heildarakstur upp á 1.378 km. Og við vorum ansi grobbnir með okkur þegar við fengum afhenta sérstaka aðgangspassa á fyrsta degi og við áttuðum okkur á því að við vorum sérstakir gestir VW Red Bull-keppnisliðsins. Með þessum pössum gátum við farið inn á hin ýmsu svæði keppninnar, bæði í þjónustuskála liðsins og á sérleiðum. Já, þetta leit vel út, gott að eiga góða að sem gefa út svona skírteini. Má segja að passar sem þessir hafi breytt öllu fyrir okkur, annars hefðum við einfaldlega þurft að standa í röð hingað og þangað, jafnvel innan um fjölmenni áhorfenda, en nokkur hundruð þúsund eru að horfa á bílana á hinum ýmsu sérleiðum rallsins þar sem vinsælustu svæðin til áhorfs eru oft frátekin af heimamönnum.

Malbik og malarvegir

Fyrsta sérleið var ekin í miðbæ Barcelona, við sjálft Spánartorgið! Ég man eftir gamalli umsókn Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur um að nota Lækjargötuna og part af Kvosinni fyrir samskonar viðburð, en slíkt mátti alls ekki, þar mátti bara halda maraþonhlaup og tónleika. Á Spáni (og víðar auðvitað) vilja menn fá keppnir í lönd sín og borgir. Það var stórkostlegt að sjá ökuþórana aka um þröngar göturnar innan um gosbrunna og gamlar byggingar. En því miður voru veðurguðirnir ekki hliðhollir okkur strákunum, sem þráðum sól og hita. Nei, mesta rigning sumarsins helltist yfir einmitt þennan dag!

Á degi tvö var ekið um malarvegi norður af Salou, bara svipaða vegi og við þekkjum hér heima, kannski fleiri tré á stangli. Heimamaðurinn Dani Sordo náði fljótt forustu á Hyundai-bíl sínum, ætlaði sér greinilega að vinna á heimavelli. Við strákarnir með passana fínu, ókum eins og greifar beint á bestu svæðin, stundum í lögreglufylgd. Lögreglan var alstaðar á ferðinni, sá til þess að rallbílar og gestir kæmust sem hraðast á milli staða. Okkur leið eins og í himnaríki. Heimamenn stóðu margir í litlum þorpum og veifuðu til allra sem óku hjá, meira segja okkar á fína bílaleigubílnum.

Úr rallbíl í kappakstursbíl

Við vorum staðráðnir að fylgjast vel með í þjónustuhléi liðanna í lok annars dags, því á þriðja degi er ekið á malbiki. Okkar menn hjá VW Red Bull voru svo sannarlega klárir í verkefnið, þrír bílar á þeirra vegum í þessari keppni. Fyrstur kom heimsmeistarinn Sebastien Ogier frá Frakklandi og skömmu síðar kom Norðmaðurinn Andreas Mikkelsen, allir á sínum ofur Polo-bílum, sem sennilega eiga fátt sameiginlegt með þeim Polo sem við þekkjum hér á götum Reykjavíkur. Á örfáum mínútum er búið að rífa allt undan bílunum, fjöðrun, spyrnur, bremsukerfi, drifbúnað og meira að segja er skipt um gírkassa. Breiðari felgur settar undir, malbiksdekk, bíllinn lækkaður og minnir fremur á kappakstursbíl en rallbíl. Aðrir stuðarar settir á og eftir rúman klukkutíma er bíl ekið á brott á lokað svæði keppnisstjórnar. Við strákarnir fengum tækifæri til þess að ræða við ökumenn, undirritaður náði góðu persónulegu spjalli við Mikkelsen, náði meðal annars að skamma hann fyrir að hafa ekki enn komið til Íslands. Viðkunnanlegur strákur sem á eftir að gera það gott á næstu misserum. Þriðji ökumaður þeirra, Finninn Jari Matti Latvala, kom seint, hafði fallið úr leik eftir bilun í drifbúnaði, en fékk að halda áfram keppni á þriðja degi með auka refsingu á bakinu.

Velta tryggir Ogier titilinn

Dagur þrjú, malbik! Bílarnir eru um 3,7 sekúndur í hundraðið og ná 200 km hraða, eru einungis með 1.600 cc mótora en eru samt 318 hestöfl, alvöruhestöfl. Og það er engu líkt að sjá þessa bíla þjóta hjá, hávaðinn eins og í formúlubíl, gripið í dekkjunum hreint ótrúlegt, þröngir vegirnir sem hlykkjast um fjallshlíðarnar, oftast vegrið á aðra hönd, eins gott að nótur aðstoðarökumanns séu réttar. Já, þessi akstur á topp ökumönnum var okkur algjörlega óskiljanlegur. Og við sáum það greinilega á malbikinu að Ogier ætlar að berjast um fyrsta sætið og um leið ná í sinn fjórða heimsmeistaratitil í röð. Og í lok þessa dags var kappinn búinn að ná forustu í keppninni, heimamaðurinn Sordo gerði allt sem hægt var til að halda fyrsta sætinu án árangurs. Mikkelsen var fulldjarfur á 12. sérleið er hann velti bíl sínum og féll þannig úr keppni, en þarna var hann í mikilli baráttu um annað sætið og sá eini utan Ogier sem gat orðið heimsmeistari. Við þessa byltu varð Ogier þannig séð orðinn heimsmeistari, en kappinn vildi meira.

Næsti hittingur á Íslandi

Lokadagur keppninnar var ansi skemmtilegur, Latvala var í miklu stuði enda ekki mikið pressa á honum, náði nokkrum sérleiðarsigrum, en Ogier stóð uppi sem sigurvegari í Spánarrallinu, sigur númer 37 í heimsmeistarakeppni. Hefur unnið 30 röll af þeim 50 sem hann hefur ekið fyrir Volkswagen-keppnisliðið. Og það var afar eftirminnileg stund þegar hann kom í stutt viðgerðarstopp og fagnaði með liði sínu (og okkur auðvitað líka) rétt áður en ekið var upp á endamarkspallinn, þar sem tvöfaldur sigur var í höfn. Hann er fjórði ökumaðurinn sem hefur náð fjórum heimsmeistaratitlum í ralli. Juha Kankkunen, Tommi Makinen og Sebastien Loeb hafa allir einnig náð þessum árangri og reyndar Loeb enn oftar. Við strákarnir gátum því fagnað sigri með þessu frábæra keppnisliði og sérstaklega var gaman að kynnast Luis Moya, aðstoðarökumanni Carlos Sainz til marga ára, sá kappi var heldur betur áhugasamur um Ísland, en hann var sérlegur tengiliður okkar við liðið og útvegaði passana fínu. „Hvenær hittumst við næst?“ spurði hann að lokum, „á Íslandi“ var svarað um hæl.“

Jari-Matti Latvala og Miikka Anttila á Volkswagen Polo R í …
Jari-Matti Latvala og Miikka Anttila á Volkswagen Polo R í Katalóníurallinu 13. október í Barcelona. AFP
Franska ökumanninum Sebastien Ogier var fagnað með stæl er heimsmeistaratitillinn …
Franska ökumanninum Sebastien Ogier var fagnað með stæl er heimsmeistaratitillinn var í höfn. AFP
Ferðafélagarnir samankomnir, frá vinstri Björn Ragnarsson, Gunnar Viggósson, Pétur Pétursson, …
Ferðafélagarnir samankomnir, frá vinstri Björn Ragnarsson, Gunnar Viggósson, Pétur Pétursson, Jóhannes Jóhannesson, Gunnlaugur Einar Briem og Páll Halldór Halldórsson.
Það tók viðgerðarliðið einungis 3 mínútur að skipta um afturdrif. …
Það tók viðgerðarliðið einungis 3 mínútur að skipta um afturdrif. Geri aðrir betur!
Grip bílanna var vægast sagt ótrúlegt að sjá á malbikinu.
Grip bílanna var vægast sagt ótrúlegt að sjá á malbikinu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: