Gnægtahorn frá lúxusdeild Ford

Navigator frá Lincoln er með voldugustu lúxusjeppum.
Navigator frá Lincoln er með voldugustu lúxusjeppum.

Sé það dyggð að búa við grófar allsnægtir þá hittir hugmyndabíllinn Navigator frá Lincoln beint í mark.

Þessi stóri jeppi er einkar voldugur, til dæmis við hliðina á bílum eins og Bentley Bentayga sem verður væntanlega keppinautur.

Kannski ekki beint bíll fyrir íslenskan markað en altjent má segja að bíllinn sé kraftbirtingarform þess að bandarískir bílsmiðir hafa endurheimt sjálfstraustið í framhaldi af fjármálakreppunni sem lagðist afar þungt á þá.

Lincoln er lúxusmerki Ford og er Navigator ætlað að vera djásn í þeirri deild. Svo sem sjá má af meðfylgjandi myndum eru hurðirnar af þeirri gerð sem mávavængir nefnast. Þá er aðgengi að jeppanum mikla auðveldað með tröppum sem skjótast út þegar hurðir opnast.

Navigator frá Lincoln er með voldugustu lúxusjeppum.
Navigator frá Lincoln er með voldugustu lúxusjeppum.
mbl.is