Útboð á ökuprófum

mbl.is/Júlíus

Ríkiskaup, fyrir hönd Samgöngustofu, hafa óskað eftir tilboðum í framkvæmd og umsjón skriflegra og verklegra ökuprófa á landinu öllu til fimm ára.

Framkvæmd skriflegra og verklegra ökuprófa var áður á hendi Umferðarráðs frá árinu 1992 til 2002. Árið 2002 var samið við Frumherja hf. um framkvæmd ökuprófa og hefur Frumherji verið prófunaraðili frá 1. apríl það ár.

Verkefni þetta fellur undir hugtakið sérleyfissamningur um þjónustu sem skilgreindur er í 22. lið 2. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, en grunnreglur EES-samningsins gilda um sérleyfissamninga um þjónustu.

Nánari upplýsingar eru í útboðsgögnum á vef Ríkiskaupa en hjá þeim verða tilboð opnuð þann  4. janúar 2017.

mbl.is