Opel frumsýnir sjö nýja 2017

Einn stærsti iðburður hjá Opel á næsta ári verður heimsfrumsýning …
Einn stærsti iðburður hjá Opel á næsta ári verður heimsfrumsýning á annarri kynslóð flaggskipsins Insignia.

Árangur bílsmiðsins Opel í Evrópu í ár er umfram áætlanir. Í byrjun október var milljónasti bíllinn seldur í álfunni sem er met hjá fyrirtækinu. Þessum áfanga náði Opel mun fyrr en áætlanir höfðu gert ráð fyrir.

„Þessar tölur sýna að nýju módelin okkar eru að hrífa fólk með sér og við ætlum okkur enn stærri hluti á næsta ári með áætlun sem gengur undir heitinu „7/17“. Þar er gert ráð fyrir að 2017 verði það stærsta í sögu Opel, með frumsýningum á 7 nýjum bílum af öllum gerðum. Opel mun þar með auka sýnileika sinn til muna á markaðnum og gefa unnendum merkisins  fleiri spennandi kosti að velja úr,“ segir Peter Christian Küspert, aðstoðarforstjóri sölusviðs Opel.

Eins og áður hefur verið greint frá er í gangi sóknaráætlun hjá Opel sem gerir ráð fyrir að kynnt verði til sögunnar 29 ný bílamódel á árunum 2016 til 2020. Hluti af henni  er „7/17“-planið fyrir 2017. Á því ári mun hæst bera markaðssetning á tímamóta rafbílnum Ampera-e.

Þá hefur Opel líka boðað frumsýningu á annarri kynslóð af Insignia, flaggskipi sínu sem fengið hefur nafnið Insignia Grand Sport. Eins liggur fyrir að bílsmiðurinn ætlar sér stórt hlutverk í hinum hraðvaxandi smájeppaflokki og mun kynna spennandi nýjungar á þeim vettvangi innan tíðar.

„Þegar á heildina er litið má segja að framtíðin sé skínandi björt hjá Opel, því bæði er um aukningu á sölu og á markaðshlutdeild í ár. Allt stefnir því í að 2016 verði það besta hjá Opel frá árinu 2011. Þetta gerist þrátt fyrir að fyrirtækið hafi dregið sig alfarið út af Rússlandsmarkaði,“ segir í tilkynningu.

mbl.is