Bílabúð Benna hefur afhent fyrsta eintakið af hinum nýja Tivoli XLV jeppa, nýjustu afurð bílsmiðsins SsangYong.
Í tilkynningu af þessu tilefni segir, að fjöldi manns hafi farið í reynsluakstur á bílnum sem nýverið var frumsýndur hér á landi og líkað vel.
„Það er ljóst af eftirspurninni að margir eiga eftir að sigla í kjölfarið,“ segir um afhendingu fyrsta Tivoli XLV.